Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

23. janúar: Umbreytt fyrir staðfasta elsku Guðs

Þetta er sigurinn, trú okkar (sbr. 1. Jóh. 5:4)

Kynning á þema
Í dag beinum við athyglinni að staðfastri elsku Guðs. Leyndardómur páskanna birtir þessa staðföstu elsku og kallar okkur til nýrrar trúar. Þessi trú yfirvinnur og opnar hjörtu okkar fyrir krafti Andans. Þannig trú kallar okkur til vináttu við Krist og við hvert annað.

Biblíulestrar
Hab. 3:17-19 Drottinn, Guð minn er styrkur minn
Sálm. 136:1-4.23-26 Miskunn hans varir að eilífu
1 Jóh. 5:1-6 Trú okkar veitir okkur sigurinn, hún hefur sigrað heiminn
Jóh. 15:9-17 Enginn hefur meiri kærleika en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína

Bæn
Drottinn Jesús Kristur, sonur hins lifandi Guðs. Með upprisu þinni hefur þú sigrað dauðann og orðið konungur lífsins. Þú býður okkur í kærleika þínum að vera vinir þínir. Megi helgur andi sameina okkur þér og hvert öðru í bandi vináttu svo að við þjónum þér af trúmennsku í þessum heimi sem vitni að trúfastri elsku þinni; Því að þú lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn Guð um aldir alda. Amen.

Til íhugunar
1. Hvernig getum við sýnt kærleika sem kristið fólk í samfélagi mismunandi trúarbragða og heimspekistefna?
2. Hvað þurfum við að gera til að verða trúverðugri vitni um elsku Guðs í sundruðum heimi?
3. Hvernig geta fylgjendur Krists stutt hvern annan á sýnilegri hátt í heiminum?