Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

24. janúar Umbreytt af Góða hirðinum

Ver hirðir sauða minna (Jóh. 21:16)

Kynning á þema
Í dag sýna Biblíutextarnir okkur Drottinn sem styrkir hjörðina sína. Við erum kölluð til að styrkja hvert annað í Drottni, sem fylgjendur góða hirðisins, og til að styðja og styrkja þau veiku og týndu. Hirðirinn er einn og við erum fólkið hans.

Biblíutextar
1. Sam. 2:1-10 Enginn er máttugur af eigin afli
Sálm. 23 Þú er hér með sprota þinn og staf
Ef. 6:10-20 Styrkist í Drottni
Jóh. 21:15-19 Ver hirðir sauða minna

Bæn
Faðir allra, þú kallar okkur í þína hjörð í syni þínum, Jesú Kristi. Hann er góði hirðirinn okkar sem lætur okkur hvílast á grænum grundum, leiðir okkur að kyrrum vötnum og hressir sál okkar. Mættum við sem fylgjendur hans hlúa svo að öðrum að allir sjái í okkur kærleika hins eina sanna hirðis, Jesú Krists, Drottins, sem lifir og ríkir með þér og Heilögum anda, einn Guð að eilífu. Amen.

Til íhugunar:
1. Hvernig hvetur góði hirðirinn okkur til að hugga og rétta við sjálfstraust þeirra sem eru týnd?
2. Hvernig getur kristið fólk í mismunandi trúfélögum styrkt hvert annað í því að bera Kristi vitni.
3. Hvað þýðir hvatning Páls um alvæpni Guðs fyrir okkur í dag?