Þann er sigrar mun ég láta sitja hjá mér í hásæti mínu (Opb. 3:21)
Þennan síðasta dag bænavikunnar fyrir einingu kristninnar fögnum við ríki Krists. Sigur Krists gerir okkur kleyft að horfa til framtíðar í von. Þessi sigur yfirvinnur allt sem getur komið í veg fyrir að við getum átt líf í fullri gnægð með honum og með hvert öðru. Kristið fólk veit að eining meðal okkar er fyrst og fremst gjöf Guðs. Hún er hlutdeild í dýrðlegum sigri Krists yfir öllu því sem sundrar.
Biblíulestrar
1. Kron. 29:10-13 Í hendi þér er vald til að efla og styrkja hvern sem vera skal.
Sálm. 21:1-7 Þú settir gullkórónu á höfuð honum.
Opb. 3:19b-22 Þann er sigrar mun ég láta sitja hjá mér í hásæti mínu.
Jóh. 12:23-26 Þann sem þjónar mér mun faðirinn heiðra.
Bæn
Almáttugi Guð sem stýri öllu, kenn okkur að íhuga leyndardóm dýrðar þinnar. Gef að við mættum taka við gjöfum þínum af auðmýkt og virða reisn sérhverrar manneskju. Megi Heilagur andi þinn styrkja okkur í þeirri andlegu baráttu sem framundan er svo að við fáum hlutdeild í ríki hans, sameinuð í Kristi. Veit það fyrir hann sem lítillækkaði sig og var lyft upp, hann sem lifir með þér og Heilögum anda, að eilífu. Amen.
Til íhugunar:
1. Hvernig birtist fölsk auðmýkt og löngun í jarðneska tign í lífi okkar?
2. Hvernig sýnum við sameiginlega trú okkar á ríki Krists.
3. Hvernig birtist vonin um guðsríkið í lífi okkar?