Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Hvers vegna þetta þema?

Saga Póllands er saga sigra og einnig margra ósigra. Pólland hefur oft verð hernumið, því hefur verið skipt upp og Pólverjar hafa verið kúgaðir af öðrum þjóðum. Sagan sýnir hvernig stöðug barátta fyrir frelsi hefur mótað líf þjóðarinnar.

En allir sigrar þýða líka tap fyrir einhvern sem ekki tekur þátt í sigurgleðinni. Hópurinn sem undirbjó efnið glímdi við spurningar um hvað það þýði að „vinna“ og „tapa“. Kristur sýnir okkur hvernig sigurinn birtist á óvæntan hátt: „Sá sem vill vera mestur verður að vera síðastur og þjónn allra.“ Sigurinn er sigur fyrir gagnkvæma þjónustu, hjálp, styrk við þau sem eru niðurbrotin og einangruð. Þar er Kristur fyrirmynd, hann sem bað þess, er hann beið þjáningar og dauða, að lærisveinar hans mættu verða eitt svo að heimurinn gæti trúað.

Þessi „sigur“ er aðeins mögulegur fyrir andlega umbreytingu. Þess vegna er þemað úr Korintubréfi og markmiðið að sameina hin kristnu í að þjóna Guði og náunganum:

„Sjá, ég segi ykkur leyndardóm: Við munum ekki öll deyja en öll munum við umbreytast, í einni svipan, á einu augabragði, við hinn síðasta lúður. Því lúðurinn mun gjalla og þá munu dauðir upp rísa óforgengilegir og við munum umbreytast. Forgengilegir og dauðlegir líkamir okkar eiga að breytast í óforgengilega líkami sem dauðinn nær ekki til.En þegar það gerist og hið forgengilega breytist og verður ódauðlegt, þá rætist það sem ritað er:
Dauðinn er uppsvelgdur í sigur.
Dauði, hvar er sigur þinn?
Dauði, hvar er broddur þinn?
En syndin er broddur dauðans og lögmálið afl syndarinnar. Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesú Krist! Þess vegna, mín elskuðu systkin, verið staðföst, óbifanleg, síauðug í verki Drottins. Þið vitið að Drottinn lætur erfiði ykkar ekki verða til ónýtis.“