Kyrrðarstund alla miðvikudaga
Alla miðvikudaga í sumar er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Lesið er úr Biblíunni, flutt hugvekja, borin er fram máltíð Drottins og að lokum er fyrirbænastund. Eftir kyrrðarstundina er boðið upp á hádegishressingu í safnaðarheimilinu.
Bryndís Malla Elídóttir, 1/7 2010 kl. 12.03