Sunnudagurinn 22. janúar
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson, Hugrún K. Helgadóttir djáknanemi prédikar og hópur messuþjóna tekur virkan þátt. Organisti Kjartan Sigurjónsson og einsöng syngur Jóhanna Ósk Valsdóttir. Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Það er alltaf gott að koma í sunnudagaskólann og hitta Nínu Björgu Vilhelmsdóttur djákna sem sér um stundina. Biblíusaga, söngur og gleði. Djúshressing í lokin fyrir alla krakka. Sunnudagaskólinn er fyrir börn á öllum aldri en fræðslan miðast við yngstu börnin. Verið velkomin!
Bryndís Malla Elídóttir, 19/1 2012 kl. 15.16