Breiðholtskirkja

 

Barnastarf í þessari viku

Miðvikudaginn 25. apríl er lokafundur hjá TTT á þessum vetri.  Þá skellum við okkur á kaffihús saman.  Athugið breyttan fundartíma, mæting klukkan 15:30.

Kirkjukrakkar hittast að venju klukkan 16 á fimmtudag og eiga saman góða stund úti, grilla pylsur og fara í leiki.  Þannig ætlum við að ljúka okkar góða vetrarstarfi saman.

Rúsinan í pylsuendanum er síðan fjölskylduguðsþjónustan næsta sunnudag (29. apríl) sem hefst klukkan 11.  Hvaða fjársjóður leynist í kistunni að þessu sinni?  Og hvaða orð úr Biblíunni opna kistuna þann daginn?  Allir hjartanlega velkomnir.

Nína Björg Vilhelmsdóttir, 24/4 2012 kl. 9.59

     

    Þangbakka 5, 109 Reykjavík. Sími 587 1500 · Kerfi RSS