Breiðholtskirkja

 

Helgihald

Messur
með altarisgöngu eru í Breiðholtskirkju hvern helgan dag kl. 11 og þá yfir veturinn samtímis sunnudagaskólanum. Börnin eru þá með hinum fullorðnu í messubyrjun, en fara síðan niður í safnaðarheimilið og ljúka samveru sinni þar.  Síðasta sunnudag í mánuði yfir vetrartímann er fjölskylduguðsþjónusta og þá syngur barnakór kirkjunnar.

Tómasarmessur
eru að jafnaði síðasta sunnudag í mánuði kl. 20. Heiti messunnar er dregið af postulanum Tómasi, sem ekki vildi trúa upprisu Drottins nema hann fengi sjálfur að sjá hann og þreifa á sárum hans. Þessari guðsþjónustu er ætlað að gera nútímamanninum auðveldara að skynja nærveru Drottins. Lögð er áhersla á upplifunarþátt messunnar, t.d. með margvíslegri bænaþjónustu, sálgæslu og fjölbreytilegum söng og tónlist, allt frá hefðbundnum sálmum við orgelleik til nútíma trúarsöngva við undirleik hljómsveitar. Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbúningi og framkvæmd Tómasarmessunnar.

 

Sunnudagaskólinn
eru  samtímis messunni á sunndögum kl. 11. Það er von okkar, að margar fjölskyldur noti tækifærið og byrji hvíldardaginn með því að ganga saman til kirkju. Með slíkri kirkjugöngu getum við eignast dýrmætar stundir með börnum okkar um leið og við bendum þeim á traustan grundvöll að byggja líf sitt á. Minnt skal á, að ung börn geta ekki sjálf borið ábyrgð á kirkjusókn sinni. Það er því hlutverk okkar, sem eldri erum, að minna þau á barnastarfið, hvetja þau til þátttöku og fylgja þeim til kirkju.

 

Kyrrðarstundir
eru í hádeginu á miðvikudögum. Kl. 12,   organistinn byrjar á því að leika á orgelið meðan fólk er að koma til kirkju. Kl. 12:10 hefst síðan stutt helgistund með ritningarlestri, altarisgöngu og fyrirbæn. Að stundinni lokinni, um kl. 12:40 stendur til boða léttur málsverður í safnaðarheimilinu.

     

    Þangbakka 5, 109 Reykjavík. Sími 587 1500 · Kerfi RSS