Miðvikudaginn 11. ágúst verður kyrrðarstund kl. 12. Stundin hefst með tónlistarflutningi og síðan verður lesið úr Guðs orði, gengið til altaris og stundinni lýkur með fyrirbæn og blessun. Bænarefnum má koma á framfæri í síma kirkjunnar 587 1500. Hádegishressing í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.
Bryndís Malla Elídóttir, 10/8 2010
10. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Julian Isaacs, félagar úr kór kirkjunnar leiða söng. Guðspjall dagsins er úr Lúkasarguðspjalli (Lk. 19:41-48) þar sem m.a. segir frá því er Jesús grét yfir Jerúsalemborg og sagði: “Ef þú hefðir aðeins vitað á þessum degi hvað til friðar heyrir! En nú er það hulið sjónum þínum.”
Gísli Jónasson, 4/8 2010
8. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Jón Bjarnason, félagar úr kór kirkjunnar leiða söng. Fermd verður Brynhildur Sól Eddudóttir frá Noregi. Guðspjall dagsins eru úr Matteusarguðspjalli (Mt. 7:15-23) þar sem Jesús segir m.a.: “Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá.”
Gísli Jónasson, 20/7 2010
Alla miðvikudaga í sumar er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Lesið er úr Biblíunni, flutt hugvekja, borin er fram máltíð Drottins og að lokum er fyrirbænastund. Eftir kyrrðarstundina er boðið upp á hádegishressingu í safnaðarheimilinu.
Bryndís Malla Elídóttir, 1/7 2010
Miðvikudaginn 30. júní verða hádegistónleikar í kirkjunni sem hefjast kl. 12. Gunnhildur Halla Baldursdóttir og Julian E. Isaacs flytja fjölbreytt verk m.a. eftir Händel, Bach og Purcell. Tónleikarnir verða í um hálftíma en að þeim loknum verður gengið til altaris og fyrirbæna eins og venja er á kyrrðarstundum á miðvikudögum. Að stundinni lokinni verður boðið upp á hádegishressingu í safnaðarheimilinu.
Bryndís Malla Elídóttir, 29/6 2010
Messa kl. 11 sunnudaginn 27. júní. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, organisti Julian E. Isaacs, félagar úr kór kirkjunnar leiða söng. Guðspjall dagsins eru orð Jesú úr Lúkasarguðspjalli þar sem m.a. segir: Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur. ATH. þetta er síðasta messan fyrir sumarleyfi starfsfólks. Kaffisopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Bryndís Malla Elídóttir, 23/6 2010
Messa kl. 11 sunnudaginn 20. júní. Prestur dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, organisti Julian E. Isaacs, kór kirkjunnar syngur. Messunni verður útvarpað á rás 1. Kaffisopi í safnaðarheimilinu að lokinni messu.
Bryndís Malla Elídóttir, 16/6 2010
Lof sé Guði, ljómar dagur, / lífgar sólargeislinn fagur / allt um heim, sem hefur líf. / Gef oss, Drottinn, gott að iðja, / gef oss náð að vaka og biðja / vertu styrkur vor og hlíf.
Kyrrðar- og bænastund er alla miðvikudaga kl. 12. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu að stund lokinni.
Bryndís Malla Elídóttir, 15/6 2010
Þriðja og síðasta “göngumessa” Breiðholtssafnaðanna verður nk. sunnudag. Lagt verður af stað frá Seljakirkju kl. 19 og gengið til messu í Fella- og Hólakirkju sem hefst kl. 20. Góð þátttaka hefur verið í göngunum og ánægjulegt að heimsækja nágrannakirkjur sínar með þessum hætti. Þar sem um sameiginlegt verkefni Breiðholtssafnaðanna er að ræða verður ekki messað í Breiðholtskirkju kl. 11 á sunnudaginn en sóknarbörn eru hvött til þátttöku í göngumessunni.
Bryndís Malla Elídóttir, 10/6 2010
Kyrrðarstund er í hádeginu á miðvikudögum í allt sumar. Stundin hefst kl. 12 með tónlist og síðan er ritningarlestur, hugleiðing og máltíð Drottins. Tekið er á móti bænarefnum í síma kirkjunnar 587 1500. Að kyrrðarstundinni lokinni er boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimilinu. Allir velkomnir.
Bryndís Malla Elídóttir, 8/6 2010