Breiðholtskirkja

 

Göngum til messu

Næst komandi sunnudag 6. júní sameinast söfnuðirnir í Breiðholtinu í svo kölluðu göngumessum.  Þá verður safnast saman við Breiðholtskirkju kl. 19 og gengið saman að Seljakirkju þar sem messað verður kl. 20.  Að lokinni messu verður göngufólki ekið aftur að upphafsreit við Breiðholtskirkju.  ATH.  þennan sunnudag verður því ekki messað í Breiðholtskirkju að morgni dags eins og venja er, en við vonumst til að sem flest sóknarbörn taki þátt í göngumessunni um kvöldið.

Bryndís Malla Elídóttir, 3/6 2010

Gengið til kirkju

Sunnudaginn 30. maí verður fyrsta messan af þremur þar sem söfnuðirnir í Breiðholtinu sameinast í helgihaldi með svo kölluðum göngumessum.  Þennan fyrsta sunnudag verður gengið frá Fella- og Hólakirkju kl. 10 til messu í Breiðholtskirkju sem hefst kl. 11.  Prestur er sr. Bryndís Malla Elídóttir, messuhópur 5 tekur þátt og kór kirkjunnar syngur undir stjórn Julian E. Isaacs.  Eftir messu verður boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimilinu og því næst verður ekið með göngufólk aftur að upphafsreit í Fella- og Hólakirkju. 

Hringurinn heldur síðan áfram fyrstu tvo sunnudagana í júní og verður gengið 6. júní frá Breiðholtskirkju til messu í Seljakirkju sem hefst kl. 20 og 13. júní verður gengið frá Seljakirkju til Fella- og Hólakirkju og hefst messa þar kl. 20.

Bryndís Malla Elídóttir, 27/5 2010

Kyrrðarstund alla miðvikudaga

Alla miðvikudaga er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12.  Stundin hefst með því að spiluð er tónlist í 10 mínútur og síðan er ritningarlestur, hugleiðing, máltíð Drottins og fyrirbæn.  Að lokinni stundinni er létt hádegishressing í safnaðarheimilinu.

Bryndís Malla Elídóttir, 25/5 2010

Hvítasunnudagur

Fermingarmessa á hvítasunnudag kl. 11.  Prestar kirkjunnar þjóna fyrir altari, organisti Julian E. Isaacs, kór kirkjunnar syngur.  Fermd verða:  Björgvin Már Karlsson, Brynhildur Júlía Einarsdóttir, Eiríkur Björn Vilhjálmsson, Eyþór Elíasson, Fjóla Guðrún Sigurðardóttir, Ísak Smári Geirsson, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir, Sigurður Freyr Jónsson, Snædís Ósk Jóhannsdóttir, Sunna Mist Óskarsdóttir, Tómas Muller Ludwigsson og Þórarinn Árnason.

“Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður”  Jóh. 14: 27.  Gleðilega hvítasunnu!

Bryndís Malla Elídóttir, 20/5 2010

Messa og aðalsafnaðarfundur

Sunnudagurinn 16. maí:  Messa kl. 11 prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, organisti Julian E. Isaacs, kór kirkjunnar syngur.  Messuhópur tekur virkan þátt í messunni.  Guðspjall dagsins minnir á sannleiksandann sem okkur er gefinn og með hans hjálp getum við gengið fram í djörfung. 

Aðalsafnaðarfundur sóknarinnar verður haldinn í safnaðarheimilinu strax að lokinni messu.   Dagskrá:  Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.  Allir velkomnir.

Bryndís Malla Elídóttir, 12/5 2010

Sunnudagurinn 9. maí

Messa kl. 11 á hinum almenna bænadegi.  Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Julian E. Isaacs, kór kirkjunnar syngur.  Barn borið til skírnar.  Guðspjall dagsins er Jóh. 16:23-30 þar sem segir m.a. biðjið og þér munuð öðlast svo að fögnuður yðar verði fullkominn.

Bryndís Malla Elídóttir, 7/5 2010

Lok barnastarfsins

Nú fer að líða að lokum barnastarfsins hér í kirkjunni.  Síðasta kóræfing hjá Broskórnum er í dag (fimmtudag) og lokafundur hjá TTT er einnig í dag.
Næsta miðvikudag (12.maí) er lokafundur hjá Kirkjuprökkurum og þann dag er mikilvægt að allir komi klæddir eftir veðri þar sem við ætlum að vera úti í leikjum og gæða okkur á grilluðum pylsum.
Eldri barnakórinn verður með sína lokaæfingu fimmtudaginn 20. maí.

Kæru vinkonur og vinir takk fyrir veturinn.  Hafið það gott í sumar og hittumst heil næsta haust.

Nína Björg Vilhelmsdóttir, 6/5 2010

Messuþjónahátíð í kvöld

Í kvöld fimmtudagskvöldið 6. maí  verður samvera fyrir messuþjóna í prófastsdæmunum í Reykjavík og gesti frá nágrannabyggðum.   Fulltrúar safnaðanna deila reynslu sinni og Egill Heiðar Gíslason formaður sóknarnefndar í Laugarnessókn segir frá rigerð sem hann hefur skrifað um þetta mikilvæga starf.  Einnig mun sr. Kristján Valur Ingólfsson ræða um altarissakaramentið undir yfirskriftinni:  Gef oss í dag vort daglegt brauð.  Í lokin verður helgistund og síðan verður boðið upp á kaffi í safnaðarheimilinu.  Allt áhugafólk um messuþjónastarfið er velkomið.

Bryndís Malla Elídóttir, 6/5 2010

Foreldramorgunn á föstudaginn

Foreldramorgunn er alla föstudaga milli kl. 10 og 12.   Þá koma foreldrar saman í safnaðarheimilinu og eiga góða stund yfir kaffi og meðlæti meðan börnin leika sér.  Í vetur hafa einstaka feður verið duglegir að mæta en meirihluti þátttakenda eru mæður sem eiga börn á öllum aldri.  Góð aðstaða er við safnaðarheimilið fyrir vagna og kerrur og einnig eru barnastólar inni og dýnur fyrir börnin.  Umsjón með foreldramorgnunum hefur Emilía s:  849 8459.

Bryndís Malla Elídóttir, 5/5 2010

Safnaðarferð á sunnudaginn

Sunnudaginn 2. maí verður farið í hina árlegu safnaðarferð kirkjunnar.  Að þessu sinni verður ekið austur fyrir fjall að Eyrarbakka og Stokkseyri.  Helgistund verður í Eyrarbakkakirkju og að henni lokinni verður boðið upp á léttan hádegismat.  Eftir hádegi verður farið í Húsið, byggðarsafn staðarins og ekið því næst að Stokkseyri þar sem stoppað verður við Þuríðarbúð sem er gömul verðbúð.  Farið verður í fjöru ef veður leyfir og ferðin endar á kaffisopa í Hveragerði.  Lagt verður af stað frá Breiðholtskirkju kl. 10 á sunnudaginn.  1500 kr. er gjaldið fyrir fullorðna, en ókeypis er fyrir börn í fylgd með fullorðnum og er þá allt innifalið, ferðirnar, matur og aðgangur að söfnum.  Skráning er í síma 587 1500 eða í síma 892 2901.

Bryndís Malla Elídóttir, 29/4 2010

Kirkjan er opin þriðjudaga til fimmtudaga frá 10:00-17:00 og föstudaga frá 10:00-14:00, s: 587 1500

Sóknarprestur er sr. Gísli Jónasson, prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir og eru viðtalstímar þeirra þriðjudaga til föstudaga kl. 11-12.

Skoðaðu vefinn

Fimmtudagur

Kl. 11-12 viðtalstími presta
Kl. 16:00 kirkjukrakkar
Kl. 16:45 æfing barnkórsins

Dagskrá ...