Fimmtudaginn 4. febrúar kl. 15:30 munu fermingarbörn vorsins máta fermingarkyrtlana í safnaðarheimili kirkjunnar. Þá er einnig tækifæri til þess að staðfesta fermingardaginn og velja sér ritningargrein fyrir fermingardaginn.
Bryndís Malla Elídóttir, 2/2 2010
Sunnudaginn 31. janúar verður fimm ára hátíð í fjölskylduguðsþjónustunni kl. 11. Þá er öllum börnum sem verða fimm ára á árinu boðið að koma og taka þátt í guðsþjónustunni og fá að gjöf fallega bók sem heitir Kata og Óli fara í kirkju. Einnig kemur Stoppleikhópurinn í heimsókn og sýnir leikritið um Kamillu og þjófinn sem er skemmtileg sýning fyrir börn á öllum aldri. Boðið er upp á ávexti og djús, kaffi og te í safnaðarheimilinu að lokinni stundinni.
Kl. 20 verður fyrsta Tómasarmessa ársins og ber hún yfirskriftina verða hinir síðustu fyrstir? Fjölmennur hópur fólks kemur að undirbúningi hverrar Tómasarmessu og leggur sig fram um að boðskapur hennar megi ná eyrum fólks. Fyrirbænin skipar stóran sess í Tómasarmessunni og er bæði hægt að fá fyrirbæn með handayfirlagningu og smurningu. Einnig má skrifa bænarefni á miða og leggja í körfu, kveikja á bænakerti eða bera bæn sína í hljóði fram fyrir Guð sem heyrir allar bænir. Boðið er upp á kaffisopa, te og kex í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Bryndís Malla Elídóttir, 28/1 2010
Eldri borgarar úr Breiðholtskirkju brugðu undir sig betri fætinum í gær og heimsóttu Guðríðarkirkju í Garfarholti. Guðríðarkirkja er yngsta kirkjan í Reykjavík en hún var vígð 7. desember 2008. Margt var athyglisvert að sjá í þessari fallegu kirkju sem meðal annars hefur tvo einstaka garða. Vel var tekið á móti hópnum af sóknarpresti Guðríðarkirkju sem sagði frá byggingu kirkjunnar, munum hennar og táknmyndum. Ferðin var ánægjuleg í alla staði og vel gæti farið svo að heimsóttar verði fleiri kirkjur á höfuðborgarsvæðinu.
Bryndís Malla Elídóttir, 28/1 2010
Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón Nínu Bjargar djákna, Lindu og Valdísar. Biblíusögur í máli og myndum, fjársjóðskistan með lykilorðinu og mikill söngur um Jesú sem er besti vinur barnanna. Allir fá mynd með sér heim í safnið. Djús, kex og ávextir í lok stundarinnar.
Messa kl. 11 prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, organisti Smári Ólason, kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Sálmarnir sem sungnir verða eru nr. 504, 223, 30, 22 og eftir prédikun nr. 340, 587 og 56. Messuþjónar taka virkan þátt í messunni ásamt fermingarbörnum. Kaffisopi eða te í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Bryndís Malla Elídóttir, 21/1 2010
Föstudaginn 22. janúar hittast foreldrar með ung börn sín í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og 12. Hjúkrunarfræðingur frá heilsugæslunni mun koma í heimsókn og fjalla um næringu og umönnun ungbarna. Góð aðstaða er í kirkjunni fyrir börnin og boðið upp á hressingu fyrir foreldrana. Foreldramorgnarnir eru alla föstudaga en nánari upplýsingar gefur Emilía G. Svavarsdóttir í síma 849 8459.
Bryndís Malla Elídóttir, 20/1 2010
Sunnudaginn 17. janúar verður messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Smári Ólason sem einnig stjórnar kór kirkjunnar. Messuþjónar taka virkan þátt í messunni og vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra þeirra. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu að lokinni messu og sunnudagaskóla.
Umsjón með sunnudagaskólanum hefur Nína Björg Vilhelmsdóttir djákni og Linda Rós Sigþórsdóttir. Í sunnudagaskólanum er mikið sungir og ómissandi er að skoða í fjársjóðskistuna sem alltaf geymir einhvern mikilvægan fjársjóð sem jafnvel er hægt að taka með sér heim á einn eða annan hátt. Biblíusögur skipa stóran sess í sunnudagaskólanum og einnig koma brúðurnar í heimsókn.
Bryndís Malla Elídóttir, 14/1 2010
Á morgun hefst Kyrrðarstund í kirkjunni klukkan 12:00. Eftir stundina er boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimilinu.
Klukkan 13:30 hittist félagsskapurinn Maður er manns gaman. Stundirnar eru hugsaðar fyrir 67 ára og eldri en að sjálfsögðu eru allir velkomnir. Í stundinni fáum við innsýn inn í gerð bókarinnar Öll þau klukknaköll, en það er Anna Sigurkarlsdóttir sem kemur til okkar, segir frá og vonandi les úr bókinni.
Kirkjuprakkarar hittast í fyrsta sinn á þessu ári á miðvikudaginn klukkan 16:00. Það verður gott að hitta bæði nýja og gamla vini aftur eftir langt frí.
Æskulýðsstarfið verður í lok dagsins eða klukkan 20:00.
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 12/1 2010
Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón Nínu Bjargar Vilhelmsdóttur djákna og Lindu Rósar Sigþórsdóttur. Fjársjóðsleit og fallegar sögur sem gefa gott veganesti fyrir unga sem aldna.
Messa kl. 11, prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, organisti Smári Ólason, kór kirkjunnar leiðir söng. Messuhópur tekur virkan þátt í þjónustunni. Kaffi, te og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Bryndís Malla Elídóttir, 8/1 2010
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna. Við biðjum þess að nýja árið verði okkur blessunarríkt og farsælt.
Kyrrðar- og bænastund verður í kirkjunni á miðvikudaginn líkt og aðra miðvikudaga. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til presta kirkjunnar í síma 587-1500 eða í stundinni sjálfri. Stundin hefst klukkan 12:00 og eftir hana er boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimilinu.
Sunnudaginn 10. janúar hefst sunnudagaskólinn á nýju ári. Hann er á sama tíma og messur kirkjunnar þ.e. klukkan 11:00. Í sömu viku hefst svo hver starfsliður á eftir öðrum, barnastarfið, æskulýðsstarfið og fyrsta samvera í félagsskapnum Maður er manns gaman verður þann 13.
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 5/1 2010
Fjórði sunnudagur í aðventu 20. desember: Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 11 í umsjón Nínu Bjargar Vilhelmsdóttur djákna, barnakórarnir syngja við undirleik Julian E. Isaacs. Jólaglaðningur fyrir börnin og kaffisopi í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.
Aðfangadagskvöld: Aftansöngur kl. 18, prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, kór kirkjunnar syngur, organisti Smári Ólason.
Jóladagur: Hátíðarmessa með altarisgöngu kl. 14, sr. Gísli Jónasson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Nínu Björgu Vilhelmsdóttur djákna. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Smára Ólasonar organista.
Annar dagur jóla: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14, prestar kirkjunnar þjóna, börn úr kirkjuprökkurunum sýna helgileik, umsjón með kirkjuprökkurunum hafa Nína Björg og Linda Rós. Barnakórarnir syngja við undirleik Julian E. Isaacs.
Gamlárskvöld: Aftansöngur kl. 18 prestur sr. Gísli Jónasson, kór kirkjunnar syngur, organisti Smári Ólason
Nýársdagur: Hátíðarmessa með altarisgöngu kl. 14, sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Nínu Björgu Vilhelmsdóttur djákna. Kirkjukórinn syngur og organisti er Smári Ólason.
Bryndís Malla Elídóttir, 16/12 2009