Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 á pálmasunnudag 28. mars. Ungir hljóðfæraleikarar leika á hljóðfæri sín, Biblíusaga um innreið Jesú í Jerúsalem og mikill söngur. Djús og kaffisopi í safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjónustunni.
Tómasarmessa kl. 20. Yfirskrift messunnar er: Hver er Jesús? Fjölbreytt tónlist, fyrirbæn og máltíð Drottins. Kaffi og te í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Allir velkomnir.
Bryndís Malla Elídóttir, 24/3 2010

Við göngum oft um götur hverfisins án þess að sjá þau undur sem þar eru að gerast. Nú er vorið á næsta leyti eins og sjá má af gróðrinum. Verum vakandi fyrir því dásamlega sem er að gerast og gleðjumst yfir því að náð Guðs er ný á hverjum degi.

Nína Björg Vilhelmsdóttir, 23/3 2010
Börnum í 7. bekk er boðið að taka þátt í forskóla fermingarfræðslunnar. Um er að ræða fjórar samverur frá kl. 10-14 laugardaginn 27. mars, þriðjudaginn 30. mars, laugardaginn 10. apríl og laugardaginn 17. apríl. Forskólinn er þátttakendum að kostnaðarlausu og boðið verður upp á hádegishressingu á hverri samveru.
Skráning fer fram þriðjudaginn 23. mars eða miðvikudaginn 24. mars í síma 587 1500 eða á netfangið breidholtskirkja@kirkjan.is.
Bryndís Malla Elídóttir, 18/3 2010
Sunnudaginn 21. mars verður sunnudagaskóli kl. 11. Þar verður mikið sungið, sagðar sögur úr Biblíunni og farið í fjársjóðsleit. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Nína Björg djákni, Karen og Linda. Djús og ávextir í lok stundarinnar.
Messa dagsins verður kl. 14 - ath. breyttan messutíma. Þá fáum við góða gesti í heimsókn úr Vestur-Skaftafellssýslu auk þess sem Skaftfellingafélagið tekur virkan þátt í messunni en félagið heldur upp á 70 ára afmæli sitt þessa helgi. Prestar sem þjóna við messuna eru bæði núverandi og fyrrverandi sóknarprestar í Skaftafellsýslunni. Sr. Ingólfur Hartvigsson sóknarprestur á Kirkjubæjarklaustri prédikar, sr. Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur í Vík þjónar fyrir altari ásamt sr. Gísla Jónassyni og sr. Bryndísi Möllu Elídóttur. Ritningarlestra lesa sr. Sigurjón Einarsson og sr. Hjörtur Hjartarson. Kirkjukórar frá Kirkjubæjarklaustri og Vík syngja ásamt Skaftfellingakórnum. Organistar eru Brian R. Haroldsson og Kári Gestsson. Allir Skaftfellingar nær og fjær eru boðnir hjartanlega velkomnir.
Bryndís Malla Elídóttir, 18/3 2010
Sunnudagaskóli kl. 11 með fjölbreyttum söng, sögum, bæn og blessun Guðs. Fjársjóðskistan verður á sínum stað og brúðurnar koma í heimsókn. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa þær Nína Björg djákni, Karen og Linda.
Messa kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, organisti Smári Ólason sem einnig stjórnar kór kirkjunnar. Messuhópur tekur virkan þátt í þjónustunni. Kaffisopi og djús fyrir börnin í safnaðarheimilinu í lokin.
Bryndís Malla Elídóttir, 12/3 2010
Á föstudagsmorgnum gefst foreldrum tækifæri á að koma í kirkjuna með börnin sín og eiga samfélag við aðra foreldra. Þar er gott að miðla af eigin upplifun og reynslu og njóta þess sem aðrir hafa fram að færa, að auki finnst börnunum gaman að koma og sjá annað smáfólk. Vertu velkomin/nn.
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 11/3 2010
Barnakórar kirkjunnar eru þessa dagana að æfa fyrir Sunnudagaskólahátíðina sem haldin verður í kirkjunni okkar í apríl. Á hátíðinni ætla allir barnakórar kirknanna í Breiðholtinu að syngja saman nokkur lög. Æfingar Broskórsins (fyrir börn í 1.-3. bekk) eru á fimmtudögum klukkan 14:15 - 15:00 í Breiðholtsskóla. Eldri barnakórinn (fyrir 4.-10. bekk) æfir í kirkjunni á fimmtudögum klukkan 15:30 - 16:30. Það er alltaf hægt að bætast í hópinn :)
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 11/3 2010
Fyrirsögnin hér að ofan er yfirskrift æskulýðsdagsins sem er næstkomandi sunnudag. Þá munu æskulýðsfélagar og fermingarbörn sjá að miklu leyti um hina föstu liði messunnar. Eldri barnakór kirkjunnar syngur fyrir okkur, stuttmynd sem krakkar í TTT hafa unnið að undanförnu verður frumsýnd og ekki er ólíklegt að við fáum gesti í heimsókn. En hvernig látum við trú okkar bera ávöxt?
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 4/3 2010
Alla miðvikudaga er kyrrðarstund kl. 12 í kirkjunni. Stundin hefst á orgelleik, síðan er ritningarlestur, hugleiðing, máltíð Drottins og fyrirbæn. Prestar kirkjunnar taka á móti bænarefnum í síma 587 1500. Að lokinni kyrrðarstund er boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarsal kirkjunnar.
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 2/3 2010
Sunnudaginn 28. febrúar verður fjölskyldumessa kl.11. Broskórinn syngur og leitað verður svara við spurningunni um leyndardóm vináttunnar. Vinakaffi í safnaðarheimilinu í lokin.
Tómasarmessa kl. 20 sem ber yfirskriftina Jesús og brauðmolarnir. Fjölbreytt tónlist og fyrirbæn. Kaffisopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Bryndís Malla Elídóttir, 26/2 2010