Þar sem vetur konungur hefur minnt á sig í dag er samveru eldri borgara sem vera átti í dag kl. 13 frestað um viku. Samveran verður því fimmtudaginn 4. mars kl. 13 en þá munu eldri borgarar í Breiðholtinu taka á móti Korpúlfum og bjóða þeim brot af því besta sem félagsstarfið í Gerðubergi stendur fyrir.
Bryndís Malla Elídóttir, 25/2 2010
Fimmtudaginn 25. febrúar verður hópur á ferð um hverfið sem kallar sig Korpúlfar. Þetta eru eldri borgarar úr Grafarvogi. Hópurinn mun koma í vinaheimsókn í Breiðholtskirkju klukkan 13:00 þennan dag þar sem byrjað verður með helgistund í kirkjunni. Við erum svo heppin að eiga góða vini í Gerðubergskórnum sem munu koma og syngja í stundinni. Eftir helgistundina liggur leiðin niður í safnaðarheimili þar sem verður kaffi og með því (kaffið kostar 500 krónur). Við hvetjum alla eldri borgara í Breiðholtinu til að koma og taka þátt í þessari vinaheimsókn.
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 24/2 2010
Á miðvikudaginn klukkan 13:30 fáum við góðan gest í heimsókn til okkar í félagsskapinn Maður er manns gaman. Kolfinna Sigurvinsdóttir íþróttafræðingur kemur til okkar og fjallar um hreyfingu og mikilvægi hennar. Ekki er ólíklegt að hún kenni okkur einhverjar góðar styrktar- og jafnvægisæfingar í lokin. Allir velkomnir.
Kyrrðar- og bænastundin hefst á miðvikudaginn klukkan 12:00. Hægt er að koma bænaefnum á framfæri í stundinni sjálfri eða með því að hafa samband í kirkjuna, sími: 587-1500. Boðið er upp á súpu og brauð að stundinni lokinni.
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 23/2 2010
Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón Nínu Bjargar djákna, Karenar og Lindu. Brúðurnar koma í heimsókn og lesin verður saga úr Biblíunni. En spurning dagsins er: Hvað verður í fjársjóðskistunni? Djús, ávextir og kirkjukexið í safnaðarheimilinu í lokin.
Messa kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, organisti Smári Ólason, félagar úr kór kirkjunnar leiða almennan safnaðarsöng. Prédikunartexti dagsins er freistingarfrásagan í fjórða kafla Matteusarguðspjalls. Kaffisopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Bryndís Malla Elídóttir, 18/2 2010
Á morgun er öskudagur og þá verður enginn fundur hjá Kirkjuprökkurum.
Kyrrðar- og bænastund kirkjunnar verður á öskudag (miðvikudag) klukkan 12:00. Með öskudegi hefst sjöviknafastan eða langafastan og hún stendur í fjörtíu daga eða fram að páskum. Lesa áfram …
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 16/2 2010

Síðastliðinn sunnudag var sýning á verkinu Bólu-Hjálmar í Fella- og Hólakirkju. Sýningin var liður í samstarfsverkefni sóknanna í Breiðholti. Sýningin var hin besta skemmtun og áhugavert að fá innsýn inn í líf þessa umdeilda skálds. Einnig var gaman að sjá hve flotta leikmynd hópurinn náði að búa til úr fjórum litlum kössum og þremur kistlum.
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 15/2 2010
Messa kl. 11 sunnudaginn 14. febrúar. Prestur sr. Gísli Jónasson, prédikun dagsins flytur sr. Toshiki Toma prestur innflytjenda. Organisti er Smári Ólason og kirkjukórinn syngur ásamt eldri barnakór kirkjunnar. Boðið verður upp á létttar veitingar í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Sunnudagaskóli kl. 11 í safnaðarheimili kirkjunnar í umsjón Nínu Bjargar djákna, Lindu og Karenar. Söngur, sögur og bænir. Öll börn fá mynd með sér heim og að sjálfsögðu verður fjársjóðskistan fundin eftir skemmtilega leit. Börn á öllum aldri hjartanlega velkomin.
Bryndís Malla Elídóttir, 5/2 2010
Námskeið um bænina verður haldið í safnaðarheimilinu þriðjudaginn 9. febrúar kl. 18-21. Á námskeiðinu verður fjallað um bænina bæði út frá Biblíunni og kristinni trúarhefð. Kynntar verða ýmsar aðferðir bænalífsins og hvernig við getum eignast innihaldsríkt bænalíf í önnum og amstri dagsins. Umsjón með námskeiðinu hefur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og boðið er upp á súpu og brauð. Skráning er í síma 587 1500 eða á breidholtskirkja@kirkjan.is
Bryndís Malla Elídóttir, 5/2 2010
Messa kl. 11 prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, organisti Smári Ólason, kirkjukórinn syngur og messuhópur tekur virkan þátt í messunni. Tekið verður á móti samskotum til Biblíufélagsins, kaffisopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón Nínu Bjargar djákna og Lindu Rósar, fjársjóðskistan og mikill söngur, boðskapur dagsins er að orð Guðs á erindi til allra barna. Djús, ávextir og önnur hressing í safnaðarheimilinu. Allir velkomnir.
Bryndís Malla Elídóttir, 4/2 2010
Þessa dagana erum við í kirkjuprökkurum að skoða hvað við höfum það gott. Það er svo margt sem við getum verið þakklát fyrir. Allir krakkar á aldrinum 6-9 ára eru velkomnir í hópinn. Lesa áfram …
Nína Björg Vilhelmsdóttir, 3/2 2010