Breiðholtskirkja

 

Kvöldmessa í Seljakirkju

Sunnudaginn 21. júní verður hringnum lokað í gönguferðum milli kirknanna í Breiðholtinu.  Þá verður lagt af stað frá Fella- og Hólakirkju kl. 19 og gengið til kvöldmessu í Seljakirkju sem hefst kl. 20.  Eins og verið hefur síðustu tvo sunnudaga verður boðið upp á hressingu að messu lokinni og ökuferð til baka að Fella- og Hólakirkju.  ATH.  ekki verður messað í Breiðholtskirkju þennan dag.

Bryndís Malla Elídóttir, 18/6 2009

Göngumessa 14. júní

Sunnudaginn 14. júní heldur samstarf safnaðanna í Breiðholtinu áfram með því að ganga saman til messu.  Lagt verður af stað frá Breiðholtskirkju kl. 10 og gengið til messu í Fella- og Hólakirkju sem hefst kl. 11.  Birna Bjarnleifsdóttir mun annast leiðsögn og segja frá sögu og staðháttum.  Eftir hressingu að lokinni messu verður boðið upp á akstur til baka að Breiðholtskirkju.  Sameinum á sunnudaginn, útivist, hreyfingu og helga stund í kirkju.

Bryndís Malla Elídóttir, 10/6 2009

Göngum saman á sunnudaginn

Í júní verður boðið upp á göngmessur milli kirknanna í Breiðholtinu.  Fyrsta gangan verður frá Seljakirkju sunnudaginn 7. júní kl. 10.  Þá verður gengið að Breiðholtskirkju með leiðsögn Birnu Bjarnleifsdóttur sem meðal annars mun segja frá gamla Breiðholtsbænum og fleiri merkum stöðum á leiðinni.  Í Breiðholtskirkju verður síðan messað kl. 11 og boðið upp á hressingu að henni lokinni. 

Sunnudaginn 14. júní verður gengið frá Breiðholtskirkju kl. 10 til messu í Fella- og Hólakirkju sem byrjar kl. 11.  Þá verður gengið upp Elliðaárdalinn og staldrað við á merkum stöðum. 

Síðasta gangan verður sunnudaginn 21. júní á sumarsólstöðum.  Þá verður lagt af stað frá Fella- og Hólakirkju kl. 19 og gengið til kvöldmessu í Seljakirkju kl. 20.   Ekið verður með göngufók aftur að þeirri kirkju sem göngurnar hófust þegar allir hafa þegið hressingu eftir messurnar.  Þessar göngumessur eru liður í auknu samstarfi safnaðann og tilvalið tækifæri til þess að njóta umhverfisins og náttúru Breiðholts í góðum félagsskap.

Bryndís Malla Elídóttir, 3/6 2009

Hvítasunnudagur

Hátíðarmessa á hvítasunnudag kl. 11.  Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Julian E. Isaacs, kór kirkjunnar syngur.  Komum saman á hátíð heilags anda og hlýðum á orð Jesú:  “Ég mun biðja föðurinn, og hann mun gefa yður annan hjálpar, að hann sé hjá yður að eilífu, anda sannleikans.” (Jóh. 14:16)

Bryndís Malla Elídóttir, 27/5 2009

Messa og aðalsafnaðarfundur

Messa kl. 11 sunnudaginn 24. maí.  Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar fyrir altari og Nína Björg Vilhelmsdóttir flytur prédikun.  Julian E. Isaacs leikur á orgelið og stjórnar kirkjukórnum.    Aðalsafnaðarfundur sóknarinnar verður haldinn að messu lokinni.  Dagskrá:  Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.  Boðið verður upp á súpu og brauð í upphafi fundarins.  Allir hjartanlega velkomnir.

Bryndís Malla Elídóttir, 20/5 2009

Stund fyrir þig ?

Á miðvikudögum eru kyrrðarstundir í kirkjunni.  Kyrrðarstundirnar hefjast klukkan 12:00 og eftir stundina er léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu.

Kirkjuprakkarar hittast klukkan 16:00 á miðvikudögum út maí.  Allir krakkar á aldrinum 7-9 ára eru velkomnir.

Nína Björg Vilhelmsdóttir, 19/5 2009

Hinn almenni bænadagur

Messa kl. 11 sunnudaginn 17. maí á hinum almenna bænadegi.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Organisti kirkjunnar Julian E. Isaacs stjórnar kirkjukórnum sem leiðir almennan safnaðarsöngu.  Kaffisopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Bryndís Malla Elídóttir, 15/5 2009

Vilt þú hafa áhrif á safnaðarstarfið?

Aðalfundur sóknarinnar verður haldinn að lokinni messu kl. 11 þann 24. maí.  Enn vantar varamenn í sóknarnefnd og því möguleiki fyrir áhugasama einstaklinga að gefa kost á sér til áhrifastarfa.  Í nefndinni er öflugt fólk sem ber hag kirkjunnar fyrir brjósti og er tilbúið að leggja sitt af mörkum til að auka og efla starf safnaðarins á breiðum grundvelli.  Formaður sóknarnefndarinnar er Sigríður Sólveig Friðgeirsdóttir, sími hennar er 896 0686 og gefur hún frekari upplýsingar um starfið en einnig er tilvalið að hafa samband við presta kirkjunnar.   Allt starf í kirkjunni er grundvallað í orði Krists sem kallar okkur til þjónustu í kærleiksríki sínu hvort sem um er að ræða setu í sóknarnefnd, þátttöku í kirkjukór eða í starfi eldri borgara nú eða messuþjónustu.  Þetta er gefandi starf sem skilar hverjum og einum blessunarríkum stundum.

Bryndís Malla Elídóttir, 13/5 2009

Kirkjuprakkarar

Í síðustu viku fengum við góðan gest í heimsókn í kirkjuprakkara.  Það var Kristín Bjarnadóttir frá Kristniboðssambandi Íslands sem heimsótti okkur og sagði okkur frá börnunum í Kenía og því mikilvæga starfi sem kristniboðar inna þar af hendi.  Kirkjuprakkararnir höfðu mikinn áhuga á frásögn hennar og báru fram margar spurningar.  Kristín hafði meðferðis poka og úr honum dró hún upp hluti sem hún hafði eignast er hún dvaldi í Afríku.  Hún fékk tvo sjálfboðaliða til að hjálpa sér, þau Önnu Dögg og Dag og á myndinni hér fyrir neðan sjáum við þau vera klædd í afrísk klæði.  Anna Dögg er í kanga og Dagur í kikoy.

Nína Björg Vilhelmsdóttir, 11/5 2009

Góður dagur

Það var sannarlega tekið vel á móti ferðalöngunum frá Breiðholtssókn síðastliðin sunnudag.  Þá var haldið í hina árlegu safnaðarferð og upphafsstaðurinn var Grindavíkurkirkja.  Þar tók sr. Elínborg Gísladóttir á móti okkur og sóttum við guðsþjónustu í kirkjunni.

Lesa áfram …

Nína Björg Vilhelmsdóttir, 10/5 2009

Kirkjan er opin þriðjudaga og miðvikdaga frá 9:00-17:00 og fimmtudaga og föstudaga frá 9:00-14:00, s: 587 1500

Sóknarprestur er sr. Gísli Jónasson, prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir og eru viðtalstímar þeirra þriðjudaga til föstudaga kl. 11-12.

Sunnudagur

Kl. 11:00 messa
Kl. 11:00 sunnudagaskóli

Dagskrá ...