Breiðholtskirkja

 

Miðvikudagurinn 8. febrúar

TTT er starf fyrir krakka á aldrinum 10-12 ára.  Fundir eru  alla miðvikudagan milli klukkan 16 - 17 .  Á morgun, miðvikudag, ætlum við að skipta okkur í hópa og búa til stuttmyndir, SPENNÓ.  Allir krakkar á aldrinum 10 - 12 ára eru velkomnir.

Maður er manns gaman er félagsskapur fyrir fólk 60+.  Samverur eru annan hvern miðvikudag og næsta samvera er einmitt á morgun.  Þá ætlum við að eiga notalegt spjall, hlusta á Hrein Eyjólfsson spila á nikkuna, grípa í handavinnu og spil.  Samverunni lýkur með rjúkandi kaffibolla og kannski kleinu ;)   Allir hjartanlega velkomnir.

Bæna- og kyrrðarstund er alla miðvikudaga í kirkjunni og hefst hún klukkan 12.  Stund þar sem friður og ró ríkir og gott næði til að tala við Guð.  Hafir þú einhver bænaefni getur þú borið þau fram í stundinni eða haft samband í kirkjuna í síma 587 1500.  Eftir stundina er boðið upp á hádegishressingu í safnaðarheimilinu.

Nína Björg Vilhelmsdóttir, 7/2 2012

Sunnudagurinn 5. febrúar 2012

Messa kl. 11, prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Örn Magnússon, kór kirkjunnar syngur.  Messuhópur tekur virkan þátt og fermingarbörn er hvött til þátttöku.   Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Sunnudagaskólinn fer í heimsókn í Fella- og Hólakirkju og tekur þátt í kirkjukrakkahátíð þar kl. 11.  Sunnudagaskólinn verður því ekki í Breiðholtskirkju næsta sunnudag en tilvalið er að fara í aðra kirkju og hitta sunnudagaskólabörnin í Fella- og Hólakirkju.

Bryndís Malla Elídóttir, 2/2 2012

Kirkjukrakkahátíð og Tómasarmessa

Sunnudaginn 29. janúar, klukkan 11:00, höldum við Kirkjukrakkahátíð hér í kirkjunni.  Sannkölluð fjölskyldustund.  Krakkar á aldrinum 6 - 9 ára sem hittast alla fimmtudaga í kirkjunni kallast Kirkjukrakkar og þeir eru búnir að vera að undirbúa hátíðina.  Börnin sýna helgileik og syngja.  Eftir stundina í kirkjunni höldum við svokallað Pálínuboð en þá mæta allir sem geta með eitthvert góðgæti á veisluborðið (t.d. niðurskorna ávexti, kexpakka, snakk….) og úr verður hið glæsilegasta veisluborð.  Sérstakir heiðursgestir eru öll börn sem fagna fimm ára afmæli á þessu ári.
Það er gaman að segja frá því að vinir okkar úr Fella- og Hólakirkju eru boðnir á hátíðina og hér með er þér einnig boðið!   Vertu hjartanlega velkomin/nn.

Klukkan 20:00 þennan sunnudag er Tómasarmessa í kirkjunni.  Þema kvöldsins er “Hvílíkur maður er þetta?”.  Það er sr. Ólafur Jóhannsson sem predikar.  Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina og leiðir söfnuðinn í lofgjörð til frelsarans.  Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Nína Björg Vilhelmsdóttir, 26/1 2012

Þorragleði Hollvinafélagsins

Föstudaginn 27. janúar efnir Hollvinafélag kirkjunnar til Þorragleði í safnaðarheimilinu kl. 20.  Þjóðleg stemmning og þorramatur, fjöldasöngur og Spilmenn Ríkínís skemmta með söng og hljóðfæraleik.  Verð 3000 kr., 1000 kr. fyrir börn yngri en 12 ára.  Skráning í síma 587 1500 eða á breidholtskirkja@kirkjan.is

Bryndís Malla Elídóttir, 24/1 2012

Á miðvikudag.

Á morgun, miðvikudag, verður margt um að vera í kirkjunni.  Bæna- og kyrrðarstund er í hádeginu og hefst hún klukkan 12.  Eftir stundina er boðið upp á hádegishressingu.

Maður er manns gaman er félagsskapur hugsaður fyrir 60 ára og eldri.  Samverurnar byrja klukkan 13:30 og á morgun fáum við að hlýða á erindi frá Þjóðminjasafninu sem ber yfirskriftina ,, Í þá gömlu góðu´´ og einnig heyrum við harmonikkutóna frá honum Hreini Eyjólfssyni.

TTT starfið hefst klukkan 16 og þangað eru allir krakkar velkomnir á aldrinum 10 - 12 ára.

Verið hjartanlega velkomin.

Nína Björg Vilhelmsdóttir, 24/1 2012

Sunnudagurinn 22. janúar

Messa og sunnudagaskóli kl. 11.  Prestur sr. Gísli Jónasson, Hugrún K. Helgadóttir djáknanemi prédikar og hópur messuþjóna tekur virkan þátt.  Organisti Kjartan Sigurjónsson og einsöng syngur Jóhanna Ósk Valsdóttir.  Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Það er alltaf gott að koma í sunnudagaskólann og hitta Nínu Björgu Vilhelmsdóttur djákna sem sér um stundina.  Biblíusaga, söngur og gleði.  Djúshressing í lokin fyrir alla krakka.  Sunnudagaskólinn er fyrir börn á öllum aldri en fræðslan miðast við yngstu börnin.  Verið velkomin!

Bryndís Malla Elídóttir, 19/1 2012

Að breyta vatni í vín

Sunnudagurinn 15. janúar:  Messa kl. 11, prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, organisti Kjartan Sigurjónsson.  Guðspjall dagsins segir frá því þegar Jesús breytti vatni í vín í borginni Kana.  Er hægt að sjá slíkt tákn í dag?  Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón Nínu Bjargar Vilhelmsdóttur.  Hvað leynist í fjársjóðskistunni?  Hver er saga dagsins?  Hvernig kemur Jesús við sögu í sunnudagaskólanum?  Djúshressing í lokin.

Bryndís Malla Elídóttir, 12/1 2012

Kyrrðarstund og samvera eldri borgara

Í dag miðvikudaginn 11. janúar verður kyrrðarstund í hádeginu kl. 12.  Hugrún djáknanemi mun flytja hugleiðingu og aðstoða við útdeilingu.  Hádegisverður í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni. 

Samvera eldri borgar hefst síðan kl. 13:30.  Á dagskrá í dag verða spil og handavinna en einnig notalegt spjall yfir kaffisopa og meðlæti.  Kynnt verður dagskrá vormisseris þar sem margt áhugavert kemur fram.

TTT hefst einnig í dag eftir jólafrí. TTT er fyrir alla krakka tíu til tólf ára.  Samverurnar eru í safnaðarheimilinu á miðvikudögum milli kl. 16 og 17 .

Bryndís Malla Elídóttir, 11/1 2012

Sunnudagurinn 8. janúar 2012

Guðsþjónusta kl. 11.  Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Örn Magnússon, kór kirkjunnar syngur.  Guðsþjónustunni verður útvarpað á Rúv. rás 1.  Molasopi í safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjónustu.

Sunnudagaskóli kl. 11.  Umsjón hefur Nína Björg Vilhelmsdóttir djákni.  Fjársjóðskistan, söngur og sögur við allra hæfi.  Ath. að þessu sinni verður sunnudagaskólinn allan tímann í safnaðarheimilinu.  Hressing í lok stundarinnar.

Bryndís Malla Elídóttir, 5/1 2012

Helgihald um jól og áramót

“Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs” Lúk. 2 

Aðfangadagur:  Aftansöngur kl. 18, prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir

Jóladagur:  Hátíðarmessa með altarisgöngu kl. 14, prestur sr. Gísli Jónasson

Annar í jólum:  Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.  Börn flytja helgileik og taka virkan þátt í guðsþjónustunni.

Miðvikudagurinn 28. desember:  Kyrrðarstund kl. 12, léttur hádegisverður að stundinni lokinni.

Gamlárskvöld:  Aftansöngur kl. 18,  prestur sr. Gísli Jónasson

Nýársdagur:  Hátíðarmessa kl. 14 með altarisgöngu,  prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir

Organisti í öllum athöfnun er Örn Magnússon og kór kirkjunnar syngur.

Guð gefi gleðileg jól og blessun á komandi ári.

Bryndís Malla Elídóttir, 20/12 2011

Kirkjan er opin þriðjudaga til fimmtudaga frá 10:00-17:00 og föstudaga frá 10:00-14:00, s: 587 1500

Sóknarprestur er sr. Gísli Jónasson, prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir og eru viðtalstímar þeirra þriðjudaga til föstudaga kl. 11-12.

Skoðaðu vefinn

Fimmtudagur

Kl. 11-12 viðtalstími presta
Kl. 16:00 kirkjukrakkar
Kl. 16:45 æfing barnkórsins

Dagskrá ...