Safnaðarstarf
Foreldramorgnar
eru í safnaðarheimilinu alla föstudagsmorgna kl. 10-12. Á foreldramorgnum gefst foreldrum kjörið tækifæri til að koma saman og njóta samverunnar í vinalegu umhverfi, ræða ýmis mál, fræðast og miðla öðrum af reynslu sinni.
Kirkjukrakkar
nefnist starfið sem ætlað er börnum á aldrinum 6-9 ára. Þessar samverustundir eru í safnaðarheimilinu á fimmtudögum kl. 16:00 - 17:00.
TTT
er ætlað fyrir 10-12 ára börn. Þessar samverur eru í safnaðarheimilinu á miðvikudögum kl. 16:00 - 17:00.
Samverur eldri borgara Annan hvern miðvikudag eru samverur eldri borgara í safnaðarheimilinu kl. 13:30. Dagsetningar vorið 2012 eru 11. og 25. janúar, 8. og 22. febrúar (auk ferðalags í Fella- og Hólakirkju 28.), 7. og 21. mars, 4. og 18. apríl.
Kirkjukór
Aðalstarf kórsins er þátttaka í guðsþjónustum og öðrum athöfnum á vegum safnaðarins, svo sem aðventuhátíð og tónleikum. Kórinn getur enn bætt við sig kórfélögum og er áhugasömum bent á að hafa samband við organisti kirkjunnar, Örn Magnússon.
Biblíulestrar
Á fimmtudögum eru haldnir biblíulestrar í Breiðholtskirkju á vegum Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar og Reykjavíkurprófastsdæmis eystra. Leiðbeinandi á námskeiðinu er dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur.