Íbúðarhúsnæði óskast á leigu á Bíldudal eða Tálknafirði
Kirkjumálasjóður, kt. 530194 – 2489, óskar eftir að taka á leigu íbúðarhúsnæði sem prestsbústað á Bíldudal eða Tálknafirði. Óskað er eftir að gera ótímabundinn leigusamning.
Æskilegt er að um einbýlishús sé að ræða 160–220 fm. að stærð helst með fjórum svefnherbergjum. Húsnæðið þarf að vera í góðu ásigkomulagi.
Nánari upplýsingar eru veittar á Biskupsstofu í síma 5284000. Tilboð skulu berast á netfangið kirkjan(hjá)kirkjan.is fyrir 20. júlí nk. eða á Biskupsstofu, Laugavegi 31, 101 Reykjavík.
Helgi Hjálmtýsson, 12/7 2010 kl. 10.07