Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall

 

Ferming

Hér er að finna efni fyrir fermingarstarf í Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli.

Signing
Í nafni Guðs Föður, Sonar og Heilags anda.
Amen.

Gullna reglan
Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera.
(Matt. 7.12)

Litla Biblían
Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.
(Jóh. 3.16)

Tvöfalda kærleiksboðorðið
Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig.
(Lúkas 10.27)

 

Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall, Bakkatúni, 465 Bíldudal. Sími og netfang: 456 2696 / 861 3604 / astapeturs@gmail.com · Kerfi RSS