Boðorðin tíu
- Ég er Drottinn Guð þinn. Þú skalt ekki aðra Guði hafa.
- Þú skalt ekki leggja nafn Guðs þíns við hégóma.
- Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.
- Heiðra skaltu föður þinn og móður.
- Þú skalt ekki mann deyða.
- Þú skalt ekki drýgja hór.
- Þú skalt ekki stela.
- Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
- Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns.
- Þú skalt ekki girnast konu náunga þins, þjón, þernu, uxa, asna né nokkuð það sem náungi þinn á.
(2.M 20.1-17)