
Krakkar í sunnudagskólanum
Sunnudaginn 8 mars kl. 14.00 verður æskulýðsmessa í Tálknafjarðarkirkju.
Krakkarnir í sunnudagaskólanum ætla að sýna mömmu og pabba, ömmu og afa og öðrum áhugasömum hvað þau eru að gera í sunnudagaskólanum.
Gamlir sunnudagaskólanemendur eru sérstaklega boðnir velkomnir.
Kristrún, Anna Kristín og Ásta
Helgi Hjálmtýsson, 5/3 2009

Ingibjörg Þorsteinsdóttir
Útför Ingibjargar Þorsteinsdóttur frá Hrauni í Tálknafirði fer fram frá Tálknafjarðarkirku laugardaginn 7. mars 2009.
Ingibjörg var fædd 24. október árið 1912 en lést þann 26. febrúar síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Reykjanesbæ.
Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir jarðsyngur. Jarðsett verður í Stóra-Laugardalskirkjugarði. Marion G. Worthmann er organisti og kórstjóri kórs Tálknafjarðarkikju.
Helgi Hjálmtýsson, 2/3 2009
Æakulýðsmessa verður haldin í Bíldudalskirkju sunnudaginn 15. febrúar kl. 14.00.
Krakkarnir í kirkjuskólanum ætla að sýna mömmu og pabba, ömmu og afa og öðrum áhugasömum hvað þau eru að fást við í kirkjuskólanum.
Gamlir sunnudagaskólanemendur eru sérstaklega boðnir velkomnir.
Helgi Hjálmtýsson, 12/2 2009

Tálknafjarðarkirkja
Guðsþjónusta fer fram í Tálknafjarðarkirkju sunnudaginn 1. febrúar og hefst hún kl. 14.
Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir þjónar fyrir altari og predikar. Kór Tálknafjarðarkirkju syngur og stjórnandi og organisti er Marion G. Worthmann. Meðhjálpari er Marinó Bjarnason.
Helgi Hjálmtýsson, 28/1 2009

Bíldudalskirkja
Sunnudaginn 18. janúar var sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir sett inn í embætti sóknarprests Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalls af sr. Agnesi M. Sigurðardóttur prófasti Vestfjarðaprófastsdæmis.
Fjórar sóknir tilheyra Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli sem eru Bíldudalssókn, Brjánslækjarsókn, Hagasókn og Stóra-Laugardalssókn.
Innsetningin fer fram í Bíldudalskirkju og eftir athöfnina verður boðið til kaffisamsætis.
kerfisstjori, 19/1 2009
Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir verður sett inn í embætti sóknarprests Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalls á sunnudag af sr. Agnesi M. Sigurðardóttur prófasti Vestfjarðaprófastsdæmis.
„Starfið leggst voða vel í mig. Enda hefur mér verið óskaplega vel tekið af fólkinu í sóknunum“, segir Ásta Ingibjörg. „Einnig hef ég fengið mjög jákvæð viðbrögð frá vinum og vandamönnum og ég finn að margir eru mjög spenntir fyrir Vestfjörðum núna, ég hugsa að viðhorfið sé mun jákvæðara en fyrir nokkrum árum“, segir Ásta Ingibjörg en hún flytur úr 101 Reykjavík ásamt manni sínum og yngri dóttur.
Fjórar sóknir tilheyra Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli sem eru Bíldudalssókn, Brjánslækjarsókn, Hagasókn og Stóra-Laugardalssókn. Innsetningin fer fram í Bíldudalskirkju og eftir athöfnina verður boðið til kaffisamsætis.

Frá vígsluathöfn Ástu Ingibjarar í Dómkirkjunni
thelma@bb.is
kerfisstjori, 13/1 2009
Prests- og djáknavígsla fór fram í Dómkirkjunni sunnudaginn 4. janúar 2009.
Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, vígði cand. theol. Ástu Ingibjörgu Pétursdóttur, sem skipuð hefur verið sóknarprestur í Bíldudals- og Táknafjarðarprestakalli, Vestfjarðarprófastsdæmi og Gunnar Einar Steingrímsson, sem kallaður hefur verið til djáknaþjónustu í Grafarvogsprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.

Ásta Ingibjörg Pétursdóttir vígð til prests
Vígsluvottar voru sr. Agnes Sigurðardóttir, prófastur, sem lýsti vígslu, sr. Sveinn Valgeirsson, sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, sr. Vigfús Þór Árnason og Magnea Sverrisdóttir, djákni.
Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir dómkirkjuprestur þjónaði fyrir altari og dómkórinn söng undir stjórn Marteins H Friðrikssonar, dómorganista.
kerfisstjori, 6/1 2009

Ásta Ingibjörg Pétursdóttir
Valnefnd Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalls ákvað á fundi sínum þann 16. desember síðastliðinn að leggja til að Ásta Ingibjörg Pétursdóttir cand. theol. verði valin sóknarprestur í prestakallinu.
Umsóknarfrestur rann út þann 3. desember síðastliðinn. Tveir umsækjendur voru um embættið sem veitist frá 1. janúar 2009.
Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Í valnefnd sitja níu fulltrúar úr prestakallinu auk prófasts Vestfjarðarprófastsdæmis.
kerfisstjori, 16/12 2008

Sveinn Valgeirsson
Valnefnd í Eyrarbakkaprestakalli, Árnesprófastsdæmi, ákvað á fundi sínum þann 9. október síðastliðinn að leggja til að sr. Sveinn Valgeirsson, verði ráðinn sóknarprestur í Eyrarbakkaprestakalli. Níu umsækjendur voru um embættið. Tveir drógu umsókn sína til baka.
Embættið veitist frá 1. nóvember næstkomandi. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Árnesprófastsdæmis.
Sveinn Valgeirsson er sóknarprestur á Tálknafirði. Hann vígðist til Tálknafjarðaprestakalls árið 1996.
kerfisstjori, 10/10 2008