Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall

 

Útför Hafliða Magnússonar

Hafliði Magnússon

Hafliði Magnússon

Útför Hafliða Þórðar Magnússonar frá Bíldudal, fer fram frá Bíldudalskirkju, laugardaginn 2. júlí kl. 16.

Hafliði fæddist 16. júlí 1935 Í Hergilsey á Breiðafirði. Hann lést á heimili sínu á Selfossi 25. júní síðast liðinn.

Sr. Egill Hallgrímsson jarðsyngur.

Helgi Hjálmtýsson, 30/6 2011

Líknarsjóður Bíldudalskirkju stofnaður

Líknarsjóður Bíldudalskirkju verður stofnaður við Guðsþjónustu á Bíldudals grænum.. laugardaginn 25. júní kl. 11 í Bíldudalskirkju.

Safnaðarstjórn Bíldudalssóknar hefur samþykkt að stofna sérstakan reikning fyrir líknarsjóð á kennitölu Bíldudalssóknar, í nafni sóknarinnar, og er fylgt þar 2. gr. starfsreglna um sóknarnefndir.

Sjóðnum er ætlað að skapa vettvang fyrir einstaklinga, stofnanir, félög og fyrirtæki til að leggja fé fram fé til líknar og hjálparstarfa í sókninni og að halda utan um fjármuni til líknarmála. Fégjafir í sjóðinn verða að sjálfsögðu ekki nýttar til annars.

Prókúra og umsjón með reikningi verður í höndum starfsmanns Landsbankans á Bíldudal en ákvarðanir um ráðstafanir sjóðsins tekur sóknarprestur. Öll umsýsla með sjóðnum er trúnaðarmál.

Í opinberum reikningum kirkjunnar verða einungis sýnar heildarhreyfingar hvers uppgjörsárs en einstakar færslur sjóðsins munu ekki koma fram.

Reikningsnúmer sjóðsins er 0153-26-100 og kennitala sóknarinnar er 460169-1439.

Helgi Hjálmtýsson, 23/6 2011

Útför Kristínar Guðbjargar Ingimundardóttur

Kristín Guðbjörg Ingimundardóttir

Kristín Guðbjörg Ingimundardóttir

Útför Kristínar Guðbjargar Ingimundardóttur, ljósmóður, frá Gileyri í Tálknafirði, fer fram frá Tálknafjarðarkirkju fimmtudaginn 23. júní kl. 14.

Kristín Guðbjörg fæddist 8. apríl 1919 í Gerði á Barðaströnd. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni Patreksfirði 14. júní síðast liðinn.

Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir jarðsyngur.

Helgi Hjálmtýsson, 22/6 2011

Helgistund í Tálknafjarðarkirkju á sjómannadag

Helgistund verður í Tálknafjarðarkirkju á sjómannadaginn  kl. 11.

Allir velkomnir!

Helgi Hjálmtýsson, 1/6 2011

Guðsþjónusta í Brjánslækjarkirkju

Guðsþjónusta verður í Brjánslækjarkirkju á páskadag kl. 14.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Helgi Hjálmtýsson, 24/4 2011

Guðsþjónusta í Tálknafjarðarkirkju

Guðsþjónusta verður í Tálknafjarðarkirkju á páskadagsmorgun kl. 9.

Eftir Guðsþjónustu verður dögurður í Dunhaga.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Helgi Hjálmtýsson, 24/4 2011

Guðsþjónusta í Bíldudalskirkju

Messa verður í Bíludalskirkju föstudaginn langa kl. 11.

Allir eru velkomnir.

Helgi Hjálmtýsson, 20/4 2011

Fasteign til kaups eða leigu

Kirkjumálasjóður óskar eftir einbýlishúsi til kaups eða leigu á Bíldudal eða Tálknafirði, til afnota sem prestssetur fyrir sóknarprest Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalls, Vestfjarðaprófastsdæmi.

Eftirtaldir þættir varðandi fasteign eru æskilegir og verða metnir sérstaklega:

  • Stærð hússins ásamt bifreiðageymslu, fylgi hún með, sé um 120 – 200 fm.
  • Húsið sé á einni hæð og aðgengi fatlaðra að húsinu gott eða viðunandi.
  • Rúmgóð stofa/borðstofa og eldhús
  • Þrjú til fjögur svefnherbergi, þar af eitt sem nýta má sem skrifstofu, helst forstofuherbergi.
  • Gestasnyrting
  • Almennt sé ástand fasteignar gott og ekki fyrirsjáanleg þörf á miklu viðhaldi eða endurbótum.
  • Æskilegt er að húsnæðið sé afhent með u.þb. þriggja mánaða fyrirvara frá undirritun samnings um kaup eða leigu.

Samningsskilmálar og annað
Ef um leigutilboð er að ræða er óskað eftir ótímabundnum leigusamningi með minnst sex mánaða en mest eins árs uppsagnarfresti.

Gert er ráð fyrir að kaupverð, ef um semst, verði greitt samkvæmt almennum venjum í fasteignaviðskiptum.
Tilgreina ber uppsett verð ef um sölutilboð er að ræða en mánaðarlegt leigugjald ef um leigutilboð er að ræða.

Tilboð óskast send Biskupsstofu á netfangið kirkjan hjá kirkjan.is merkt:
„Tilboð vegna auglýsingar eftir fasteign á Bíldudal eða Tálknafirði“.

Einnig má senda skrifleg tilboð til:
Biskupsstofa
fasteignasvið
Laugavegi 31
150 Reykjavík

Tilboð þurfa að hafa borist í tölvupósti eða hafa verið póstlögð til Biskupsstofu eigi síðar en  28. apríl 2011.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Mjöll Kristinsdóttir, verkefnisstjóri á fasteignasviði Biskupsstofu s. 528 4000 netfang kristin.mjoll.kristindottir hjá kirkjan.is

Fasteignasvið vegna kirkjumálasjóðs áskilur sér frest til að fara yfir tilboð og skoða fasteignir á staðnum fram til 15. maí 2011.

Fyrirvari er gerður um samþykki fasteignanefndar þjóðkirkjunnar vegna leigusamnings og kirkjuráðs vegna kaupsamnings.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Helgi Hjálmtýsson, 16/4 2011

Guðsþjónusta í Tálknafjarðarkirkju

Guðsþjónusta verður í Tálknafjarðarkirkju sunndaginn 20. mars kl. 14.00.

Um tónlistarflutning sjá Marion G. Worthmann organisti og Guðkompaníið ásamt Signýu Sverrisdóttur.

Helgi Hjálmtýsson, 18/3 2011

Guðsþjónusta í Bíldudalskirkju

Guðsþjónusta verður í Bíldudalskirkju sunnudaginn 6. mars kl. 14.

Allir eru velkomnir.

Helgi Hjálmtýsson, 4/3 2011

RSS-þjónusta

Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir
456 2696 / 861 3604
astapeturs@gmail.com

 

Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall, Bakkatúni, 465 Bíldudal. Sími og netfang: 456 2696 / 861 3604 / astapeturs@gmail.com · Kerfi RSS