
Svanborg Guðmundsdóttir
Útför Svanborgar Guðmundsdóttur frá Bíldudal fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 23. október 2010 kl. 11.
Svanborg fæddist á Kvígindisfelli í Tálknafirði 25. desember 1921. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni Patreksfirði 15. október sl.
Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir jarðsyngur. Jarðsett verður í Bíldudalskirkjugarði.
Helgi Hjálmtýsson, 21/10 2010
Guðsþjónusta verður í Tálknafjarðarkirkju sunnudaginn 17. október kl. 14.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
Helgi Hjálmtýsson, 14/10 2010

Þröstur Jóhannesson
Þröstur Jóhannesson ætlar í tilefni af væntanlegri sólóplötu að bjóða Vestfirðingum uppp á tónleika í október og nóvember.
Þröstur mun troða upp einn síns liðs með kassagítarinn og kynna nýtt efni í bland við eldra í Tálknafjarðarkirkju sunnudaginn 17. október kl. 17.
Tónleikar Þrastar eru styrktir af Menningarráði Vestfjarða og er ókeypis inn á tónleikana.
Helgi Hjálmtýsson, 12/10 2010

Sunnukórinn
Sunnukórinn blæs til tónleika í Tálknafjarðarkirkju laugardaginn 9. október kl. 16.
Aðgangseyrir er kr. 1500 en ókeypis er fyrir börn yngri en 12 ára.
Stjórnandi kórsins er Ingunn Ósk Sturludóttir en píanóleikari er Sigríður Ragnarsdóttir.
Helgi Hjálmtýsson, 1/10 2010
Aðalfundur sóknarnefndar Bíldudalssóknar verður haldinn í Gamla skóla, safnaðarheimili sóknarinnar, miðvikudaginn 29. september kl. 20.
Allir velkomnir.
Helgi Hjálmtýsson, 27/9 2010
Guðsþjónusta verður í Bíldudalskirkju sunnudaginn 26. september kl. 14.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
Helgi Hjálmtýsson, 23/9 2010
Fjölskyldumessa verður í Tálknafjarðarkirkju sunnudaginn 19. september kl. 14.
Hulda Karlsdóttir kemur og kynnir Hjálparstarf kirkjunnar. Eftir messu verður boðið upp á kaffi.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
Helgi Hjálmtýsson, 18/9 2010

Vinir í bata
Kynningarfundur tólf spora starfs verður í Tálknafjarðarkirkju föstudagskvöldið 10. september kl. 20.
Fundurinn er öllum opin og reiknað er með að hann standi í tvær klukkustundir.
Fyrsti fundur verður haldinn í beinu framhaldi laugardaginn 11. september frá kl. 10-14. Fyrsti fundur er opinn öllum en hópum verður síðan lokað á fjórða fundi.
Í tólf spora starfi felst tækifæri til að skoða líf sitt, tala, hlusta, þroskast og öðlast meiri færni í að takast á við sjálfan sig og lífið.
Besta leiðin til að kynnast þessu frábæra ferðalagi er að mæta í Tálknafjarðarkirkju, en einnig má fá frekari upplýsingar á viniribata.is eða hringja í sr. Ástu I. Pétursdóttur, sóknarprest, í síma 861 3604.
Á viniribata.is má lista yfir algeng hegðunarmynstur þar sem tólf sporin geta hjálpað.
Helgi Hjálmtýsson, 8/9 2010
Guðsþjónusta verður í Bíldudalskirkju sunnudaginn 22. ágúst kl. 11
.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
Helgi Hjálmtýsson, 22/8 2010

Kirkjukort.net
Ný íslenskur vefur, kirkjukort.net, hefur verið opnaður. Á vefnum eru upplýsingar um allar kirkjur og bænhús á Íslandi. Vefurinn byggir á Google Maps og geta notendur því auðveldlega séð staðsetningu allra kirkna.
Á síðu hverrar kirkju er mynd af henni, stutt lýsing og annar fróðleikur sem viðkemur kirkjunni. Auðvelt er að skrá sig inn á síðuna. Notendur geta bætt eigin ljósmyndum við kirkjur landsins.
Á auðveldan máta má leita að kirkju eftir nafni, byggingarári, landshluta eða bæjarfélagi. Þegar kirkjur eru skoðaðar eftir byggingarári er hægt að skoða stök ár, áratug eða tímabil sem notandi getur sjálfur stillt.
Höfundar síðunnar eru bræðurnir Þórarinn Örn Andrésson og Andrés Ásgeir Andrésson.
Helgi Hjálmtýsson, 14/7 2010