Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall

 

Íbúðarhúsnæði óskast á leigu á Bíldudal eða Tálknafirði

Kirkjumálasjóður, kt. 530194 – 2489, óskar eftir að taka á leigu íbúðarhúsnæði sem prestsbústað á Bíldudal  eða Tálknafirði. Óskað er eftir að gera ótímabundinn leigusamning.

Æskilegt er að um einbýlishús sé að ræða 160–220 fm. að stærð helst með fjórum svefnherbergjum. Húsnæðið þarf að vera í góðu ásigkomulagi.

Nánari upplýsingar eru veittar á Biskupsstofu í síma 5284000. Tilboð skulu berast á netfangið kirkjan(hjá)kirkjan.is fyrir 20. júlí nk. eða á Biskupsstofu, Laugavegi 31, 101 Reykjavík.

Helgi Hjálmtýsson, 12/7 2010

Guðsþjónusta í Stóra-Laugardalskirkju á Jónsmessu

Stóra-Laugardalskirkja

Stóra-Laugardalskirkja

Guðsþjónusta verður í Stóra-Laugardalskirkju á Jónsmessu, fimmtudaginn 24. júní kl. 22.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Helgi Hjálmtýsson, 23/6 2010

Útför Gunnars Knúts Valdimarssonar

Gunnar Knútur Valdimarsson

Gunnar Knútur Valdimarsson

Útför Gunnars Knúts Valdimarssonar frá Bíldudal fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 26. júní 2010 kl. 14.

Gunnar Knútur fæddist í Sæbakka á Bíldudal 3. nóvember 1924. Hann lést á heimili sínu 20. júní sl.

Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir jarðsyngur. Jarðsett verður í Bíldudalskirkjugarði.

Helgi Hjálmtýsson, 22/6 2010

Guðsþjónusta í Tálknafjarðarkirkju

Tálknafjarðarkirkja

Tálknafjarðarkirkja

Guðsþjónusta verður í Tálknafjarðarkirkju sunnudaginn 13. júní kl. 14.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Helgi Hjálmtýsson, 11/6 2010

Fermingarmessur um hvítasunnu

Dúfa

Dúfa

Fermingarmessa  verður í Tálknafjarðarkirkju, laugardaginn 22. maí kl. 13.
Fermd verða:

  • Ástrós Ýr Guðmundsdóttir,
  • Brynja Liv Bragadóttir,
  • Elsa Hrönn Bjarnadóttir,
  • Kristinn Þór Óskarsson og
  • Hafrún Tryggvadóttir.

Fermingarmessa verður í Bíldudalskirkju á hvítasunnudag 23. maí kl. 14.

Fermd verða:

  • Arnór Freyr Gíslason,
  • Auður Ýr Viðarsdóttir og
  • Linda Kristín Smáradóttir.

Helgi Hjálmtýsson, 18/5 2010

Guðsþjónusta í Tálknafjarðarkirkju

Tálknafjarðarkirkja

Tálknafjarðarkirkja

Ath. breyttur tími, Guðsþjónustan verður kl. 11 en ekki kl. 14.

Guðsþjónusta verður í Tálknafjarðarkirkju sunnudaginn 9. maí kl. 11.

Fermingarbörn taka þátt í þjónustunni. Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir þjónar fyrir altari.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Helgi Hjálmtýsson, 5/5 2010

Útför Jóns Bjarnasonar

Jón Bjarnason

Jón Bjarnason

Útför Jóns Bjarnasonar frá Tálknafirði fór fram frá Tálknafjarðarkirkju laugardaginn 10. apríl 2010 kl. 14.

Jón Bjarnason fæddist í Reykjavík 27. mars 1930. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 1. apríl s.l.

Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir jarðsöng. Jarðsett var í Stóra-Laugardalsgarði.

Helgi Hjálmtýsson, 12/4 2010

Helgihald um páska

Hagakirkja
Hagakirkja

Helgihald yfir páska í Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli er eftirfarandi.

Skírdagur

  • Messa í Tálknafjarðarkirkju k. 21. Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir messar.

Föstudagurinn langi

  • Lestur Passíusálma í Bíldudalskirkju kl. 11, gengið verður til altaris. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimili eftir lesturinn.

Páskadagur

  • Messa í Tálknafjarðarkirkju kl. 9, boðið upp á Dögurð í Dunhaga eftir messu. Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir messar.
  • Messa í Bíldudalskirkju kl. 13. Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir messar.
  • Messa í Hagakirkju kl. 16. Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir messar.

Helgi Hjálmtýsson, 1/4 2010

Útför Guðrúnar Elínar Ólafsdóttur

Guðrún Elín Ólafsdóttir

Guðrún Elín Ólafsdóttir

Útför Guðrúnar Elínar Ólafsdóttur frá Bíldudal fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 20. mars 2010 kl. 14.

Guðrún Elín Ólafsdóttir fæddist í Reykjarfirði 8. apríl 1923. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni Patreksfirði 10. mars sl.

Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir jarðsyngur. Jarðsett verður í Bíldudalskirkjugarði.

Helgi Hjálmtýsson, 19/3 2010

Guðsþjónusta í Tálknafjarðarkirkju

Tálknafjarðarkirkja

Tálknafjarðarkirkja

Guðsþjónusta verður í Tálknafjarðarkirkju sunnudaginn 14. mars kl. 14.

Sunnudagaskólinn er kl. 11. Allir eru hjartanlega velkomnir!

Helgi Hjálmtýsson, 11/3 2010

RSS-þjónusta

Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir
456 2696 / 861 3604
astapeturs@gmail.com

 

Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall, Bakkatúni, 465 Bíldudal. Sími og netfang: 456 2696 / 861 3604 / astapeturs@gmail.com · Kerfi RSS