Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall

 

Aðventuhátíð í Tálknafjarðarkirkju

Tálknafjarðarkirkja

Tálknafjarðarkirkja

Nú, fyrsta sunnudag í aðventu, 29. nóvember kl. 17, ætlum við að hittast í kirkjunni og fagna aðventunni saman.

Börn úr sunnudagaskólanum syngja nokkur jólalög, fermingarbörn sýna helgileik. Komum og hefjum jólaundirbúninginn saman.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Helgi Hjálmtýsson, 26/11 2009

Útför Ragnhildar G. Finnbogadóttur

Ragnhildur G. Finnbogadóttir

Ragnhildur G. Finnbogadóttir

Útför Ragnhildar Gíslínu Finnbogadóttur frá Hvestu fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 21. nóvember 2009 kl. 14.

Ragnhildur var fædd 24. febrúar 1924 á Hóli í Bakkadal í Arnarfirði og ólst þar upp. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 9. nóvember 2009.

Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir jarðsyngur. Jarðsett verður í Bíldudalskirkjugarði.

Helgi Hjálmtýsson, 18/11 2009

Guðsþjónusta í Tálknafjarðarkirkju

Talknafjarðarkirkja

Talknafjarðarkirkja

Guðsþjónusta verður í Tálknafjarðarkirkju sunnudaginn 8. nóvember kl. 14.

Eftir messu verður haldinn kökubasar til styrktar kirkjunni.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Helgi Hjálmtýsson, 5/11 2009

Vefur fyrir börn

Heyrumst.is

Heyrumst.is

Barnaheill hefur opnað barna-og unglingavefinn www.heyrumst.is.

Vefurinn er afmælisgjöf til barna og ungmenna á Íslandi, en í ár fagna Barnaheill 20 ára starfsafmæli. Vefurinn verður á íslensku, ensku og pólsku svo að ná megi til sem flestra ungmenna á Íslandi.

Vefurinn www.heyrumst.is gerir börnum kleift að koma skoðunum sínum á framfæri, auk þess að veita þeim margþættan stuðning og upplýsingar á þeirra forsendum.

Helgi Hjálmtýsson, 3/11 2009

Kirkjuþing 2009

Kirkjuþing 2009

Kirkjuþing 2009

Kirkjuþing 2009 hefst 7. nóvember í Grensáskirkju og stendur til 13. nóvember.

Á dagskrá þingsins eru 27 mál.

Í málaskrá kirkjuþings má skoða öll þau má er liggja fyrir þinginu.

Hljóðskrár frá þingfundum verða settar á vefinn eftir hvern þingfund. Þær má finna á vef kirkjuþings, www.kirkjuthing.is, undir liðnum upptökur. Einnig er að finna frekari upplýsingar um kirkjuþing á vefnum og lista yfir þingfulltrúa.

Helgi Hjálmtýsson, 2/11 2009

Guðsþjónusta í Bíldudalskirkju

Bíldudalskirkja

Bíldudalskirkja

Guðsþjónusta verður í Bíldudalskirkju sunnudaginn 1. nóvember kl. 11.

Eftir messu verður boðið upp á súpu í Gamla skóla.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Helgi Hjálmtýsson, 30/10 2009

Útför Friðriks Árna Kristjánssonar

Friðrik Árni Kristjánsson

Friðrik Árni Kristjánsson

Útför Friðriks Árna Kristjánssonar frá Tálknafirði fer fram frá Tálknafjarðarkikju 10. október 2009 kl. 14.

Friðrik Árni var fæddur 1. ágúst 1922 í Stapadal í Arnarfirði en lést á heimili sínu 1. október síðastliðinn.

Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir jarðsyngur en jarðsett verður í Bíldudalskirkjugarði.

Helgi Hjálmtýsson, 8/10 2009

12 spora fundir falla niður

Fyrirhugaðir kynningarfundir um 12 sporin sem halda átti nú um helgina falla niður af óviðráðanlegum orsökum.

Helgi Hjálmtýsson, 2/10 2009

12 spora starf

Vinir í bata

Vinir í bata

Kynning á 12 spora starfi fer fram 3. og 4. október.

Á kynningunni gefst fólki tækifæri til að hlusta á vitnisburði um áhrifamátt 12 sporanna.

12 spora starf er fyrir alla sem vilja leitast við að bæta sjálfan sig og mannlífið um leið, allir hafa gott að því að kynnast sporunum tólf, ekki aðeins alkahólistar.

Fundirnir fara fram sem hér segir:

  • Laugardaginn 3. okt. kl. 13-16, í Safnaðarheimili Patreksfjarðarkirkju Aðalstræti 75.
  • Sunnudaginn 4. okt. kl. 10-14, í Gamla skóla á Bíldudal.

Sporin 12 - andlegt ferðalag er leiðsögn fyrir fólk sem mætt hefur misjöfnu á lífsleiðinni og vill bæta líðan sína eða sættast við fortíðina. Þótt í þessu starfi sé byggt á reynslusporum AA-samtakanna er ekki verið að glíma hér við alkóhólisma heldur hvers kyns annað mótlæti sem fólk kann að hafa orðið fyrir. Reynslusporin 12 og boðskapur trúarinnar hafa reynst fólki vel í slíku uppbyggingarstarfi.

Hægt er að lesa um 12 sporin á http://viniribata.is.

Helgi Hjálmtýsson, 25/9 2009

Guðsþjónusta í Tálknafjarðarkirkju

Tálknafjarðarkirkja

Tálknafjarðarkirkja

Guðsþjónusta verður í Tálknafjarðarkirkju sunnudaginn 13. september kl. 14.

Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir prédikar. Marion G. Worthmann er organisti og stjórnar kór Tálknafjarðarkirkju.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Helgi Hjálmtýsson, 10/9 2009

RSS-þjónusta

Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir
456 2696 / 861 3604
astapeturs@gmail.com

 

Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall, Bakkatúni, 465 Bíldudal. Sími og netfang: 456 2696 / 861 3604 / astapeturs@gmail.com · Kerfi RSS