
Mótorhjólamessa í Haga á Barðaströnd
Á sunnudaginn síðasta fór fram mótorhjólamessa í Haga á Barðaströnd.
Messan var haldin í samvinnu við Bifhjólaklúbbinn Þeysi en í klúbbnum eru margir riddarar götunnar á suðursvæði Vestfjarða. Messan var vel sótt þrátt fyrir að veðurútlit væri tvísýnt en sól og blíða mætti kirkjugestum eftir messu þar sem boðið var upp á hressingu. Hljómsveit lék sálma og lög í messunni og mæltist það vel fyrir hjá kirkjugestum.
Þetta er í fyrsta skipti sem messað er til heiðurs bifhjólafólki á svæðinu svo vitað sé.
Helgi Hjálmtýsson, 8/9 2009

Hólmavíkurkirkja hefur verið valin í verkefni Kirkjuráðs sem felst í því að koma þinglýsingum kirkjulegra eigna í viðundandi horf.
Kirkjuráð ákvað að taka út nokkrar kirkjur í dreif- og þéttbýli til að fá reynslu af verkferlinu sem þessu fylgir og var Hólmavíkurkirkja m.a. fyrir valinu. Sveitarstjórn Strandabyggðar tók erindi Kirkjuráðs fyrir á dögunum og samþykkti samhljóða að taka þátt í þessu verkferli.
Helgi Hjálmtýsson, 3/9 2009

Hagakirkja
Guðsþjónusta verður í Hagakirkju á Barðaströnd sunnudaginn 6. september kl. 14. Guðsþjónustan er haldin í samvinnu við Bifhjólaklúbbinn Þeysi http://theysir.123.is.
Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir predikar og hljómsveit leikur lög og sálma.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Helgi Hjálmtýsson, 1/9 2009

Hjálmtýr Adólf Hrómundsson
Útför Hjálmtýs Adólfs Hrómundssonar frá Bíldudal fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 15. ágúst 2009 kl. 14.
Hjálmtýr Adólf var fæddur 2. apríl 1922 í Rafstöðinni í Bíldudal en lést 2. ágúst síðastliðinn á Heilbrigðisstofnuninni Patreksfirði.
Sr. Leifur Ragnar Jónsson jarðsyngur. Jarðsett verður í Bíldudalskirkjugarði.
Helgi Hjálmtýsson, 10/8 2009

Tálknafjarðarkirkja
Guðsþjónusta verður í Tálknafjarðarkirkju sunnudaginn 26. júlí kl. 14.
Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir predikar, Marion G. Worthmann er organisti og stjórnar kór Tálknafjarðarkirkju. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Helgi Hjálmtýsson, 17/7 2009
Guðþjónusta verður í Bíldudalskirkju sunnudaginn 28. júní á fjölskylduhátíðinni Bíldudals grænum…
Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir predikar, Marion G. Worthmann er organisti og Nathalia Druzin mezzosópran syngur einsöng. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Helgi Hjálmtýsson, 19/6 2009

Stóra-Laugardalskirkja
Á Jónsmessu, 24. júní, verður miðnæturmessa í Stóra-Laugardalskirkju í Tálknafirði kl. 23:30.
Allir eru hjartanlega velkomnir
Sóknarpresturinn.
Helgi Hjálmtýsson, 19/6 2009
Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, opnaði í dag nýjan vef fyrir Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall.
Herra Karl er í vísitasíuferð um Vestfirði. Í gær messaði hann í Haga á Barðaströnd og í dag verður messa í Tálknafjarðarkirkju kl. 20.
Í Bíldudalskirkju var bænastund í hádeginu og á eftir opnaði herra Karl vefinn í Gamla skólanum á Bíldudal, safnaðarheimili Bíldudalskirkju. Að lokinni heimsókn í Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall er förinni heitið í Patreksfjarðarprestakall.
Slóðin á vefinn er http://www.kirkjan.is/bt

Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, sóknarprestur, Jörundur Garðarsson, sóknarnefndarmaður og sr. Agnes Sigurðardóttir, prófastur
Helgi Hjálmtýsson, 10/6 2009

Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson
Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vísiterar Vestfirði dagana 4.-14. júní.
Vísitasían hefst á Suðureyri á fimmtudagskvöld með messu í Suðureyrarkirkju. Næstu tvo daga vísiterar biskup sóknir í Þingeyrarprestakalli, en vísiterar svo Reykhólaprestakall, Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall og Patreksfjarðarprestakall. Ferð biskups um Vestfirði lýkur svo með messu í Flatey sunnudaginn 14. júní kl. 14.
Þriðjudagur 9. júní
Kl. 20.00 Messa í Hagakirkju
Miðvikudagur 10. júní
Kl. 11.30 Bænastund í Bíldudalskirkju
Kl. 20.00 Messa í Tálknafjarðarkirkju
Fimmtudagur 11. júní
Kl. 11.00 Helgistund á Sjúkrahúsinu á Patreksfirði
Föstudagur 12. júní
Kl. 13.00 Helgistund í Saurbæjarkirkju á Rauðasandi
Kl. 20:00 Messa í Patreksfjarðarkirkju og messukaffi á eftir í safnaðarheimilinu
Helgi Hjálmtýsson, 3/6 2009
Fermingarmessa verður í Bíldudalskirkju á hvítasunnudag 31. maí, kl. 13:30.
Fermdar verða tvær stúlkur:
- Birna Björk Benediktsdóttir og
- Lovísa Rut Jónsdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir til messu.
Helgi Hjálmtýsson, 28/5 2009