Fermingarmessa verður í Bíldudalskirkju á hvítasunnudag 31. maí, kl. 13:30.
Fermdar verða tvær stúlkur:
- Birna Björk Benediktsdóttir og
- Lovísa Rut Jónsdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir til messu.
Helgi Hjálmtýsson, 28/5 2009
Á hvítasunnudag 31. maí, kl. 11, verður fermingarmessa í Tálknafjarðarkirkju.
Fjórir drengir verða fermdir:
- Bjarki Sigurvinsson,
- Jón Gunnar Ingólfsson,
- Styrmir Níelsson og
- Thomas Þór Branson.
Allir hjartanlega velkomnir til messu.
Helgi Hjálmtýsson, 28/5 2009
Bænastund verður haldin í Bíldudalskirkju mánudaginn 25. maí kl. 18.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Helgi Hjálmtýsson, 24/5 2009
Aðalfundur Stóru-Laugardalssóknar verður haldinn þriðjudaginn 19. maí í Tálknafjarðarkirkju kl. 20.
Sóknarnefnd Stóru-Laugardalssóknar
Helgi Hjálmtýsson, 18/5 2009
Aðalfundur Bíldudalssóknar verður haldinn mánudaginn 18. maí í Gamla skóla kl. 20:30.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Framkvæmdir við kirkjuna og kirkjugarð
3. Önnur mál
Sóknarnefnd Bíldudalskirkju
Helgi Hjálmtýsson, 15/5 2009

Stóra Laugardalskirkja í Tálknafirði verður toguð saman í orðsins fyllstu merkingu á næstu vikum. Kirkjan hefur sigið og gliðnað um leið en úr því verður nú bætt.
Það er þekkt en þó sjaldgæft að upp komi klofningur í kirkjudeildum eða söfnuðum hér á landi. Þó sjaldan með eins áþreifanlegum hætti og í Laugardal Tálknafirði. Þar er sjálf kirkjan að gliðna í sundur og predikunarstóllinn einnig. Á því verður þó ráðin bót á næstu mánuðum.
Stóra Laugardalskirkja í Tálknafirði var endurbyggð árið 1906, af Jóni Timburmeistara, Jónssyni, en vígsla hennar dróst þar til í ársbyrjun árið 1907.
Kirkjan er timburkirkja með hefðbundnu lagi en grundvöllur hennar er hlaðinn úr blágrýti. Síðustu ár hefur kirkjan verið að síga, sérstaklega eitt horn hennar og eru afleiðingarnar þær að húsið er tekið að gliðna í sundur að ofanverðu.
Innviðir hafa að sama skapi látið á sjá og er predikunarstóllinn, sem er hin glæsilegasta smíð hreinlega að klofna.
Viðgerð á kirkjunni á að hefjast á næstu dögum, enda talið að það megi ekki bíða öllu lengur. Sett verða tvö togbönd á burðarvirki kirkjunnar og hún toguð saman í bókstaflegri merkingu.
Síðan verða skemmdir á kirkjunni lagfærðar og henni komið í sem næst upprunalegt horf. Einnig er ætlunin að smíða fleka fyrir glugga kirkjunnar en rúður hafa viljað brotna í henni vegna foks. Kirkjan verður lokuð á meðan á viðgerð stendur.
Sóknarkirkja Tálknfirðinga í dag er Tálknafjarðarkirkja sem stendur á Þinghóli í utanverðum bænum en hún var vígð árið 2002. Hinsvegar hefur verið messað í Stóra Laugardal í endaðan júní ár hvert og auk þess sem þar fara fram ýmsar kirkjulegar athfanir. Þar er einnig kirkjugarður Tálknfirðinga.
Fjárlaganefnd Alþingis kostar viðgerð á Stóra Laugardalskirkju en framkvæmdina annast Trésmiðjan Eik á Tálknafirði.
Frétt af ruv.is
Helgi Hjálmtýsson, 2/5 2009
Hér er að finna viðtal við sr. Ástu Ingibjörgu Pétursdóttur
sem tekið var í tilefni af predikun hennar á prestastefnu 2009.
http://mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/24257
Helgi Hjálmtýsson, 29/4 2009

Vefur um geðrækt
Í febrúar var opnaður sérstakur vefur um geðrækt við Háskóla Íslands.
Markmið vefsins er að skapa jákvæða umræðu um geðheilsu og vekja athygli fólks á hárri tíðni álagsþátta meðal háskólanema. Einnig er ætlunin með vefnum að auka þekkingu stúdenta, starfsfólks og almennings á einkennum helstu geðraskana og veita upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði hér á landi.
Þessari nýju upplýsingamiðlun er þannig í senn ætlað að upplýsa nemendur, starfsfólk Háskóla Íslands og almenning um stuðningsúrræði og vinna gegn fordómum í garð geðraskana. Vefurinn verður öllum opinn og er á slóðinni http://www.ged.hi.is.
Efni geðræktar- eða geðspekivefsins er sett fram á skýran og afar aðgengilegan hátt og vekur hann athygli á því álagi sem fylgir því að vera í námi. Þannig geta nemendur áttað sig sem best á streituvöldum og áhættuþáttum sem eðlilega tengjast akademísku samfélagi og brugðist við þeim.
Geðspekivefurinn er samstarfsverkefni þriggja fræðigreina innan háskólans en að verkinu koma jafnt nemendur og kennarar.
Nemendur sem unnu í verkefninu eru Þorgerður Hafstað úr hjúkrunarfræði, Sigríður Einarsdóttir, MA nemi í bókasafns og upplýsingafræði og Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir MA nemi í sálfræði.
Kennararnir sem unnu að vefnum nýja eru þær Ágústa Pálsdóttir, dósent í bókasafns- og upplýsingafræði, Jóhanna Bernharðsdóttir, lektor í hjúkrunarfræði og Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, dósent í sálfræði. Zuilma Gabríela mun flytja stutt ávarp á morgun við opnun vefsins fyrir hönd aðstandendanna.
Markmið aðstandenda vefsins er að hafa á einum stað fræðsluefni tengt geðheilsurækt, áhrif streitu og helstu einkenni geðraskana í þeim tilgangi að dýpka þekkingu á geðheilbrigði, áhættuþáttum, meðferðarúrræðum og stuðla að geðheilbrigði.
Markmið aðstandenda vefsins er að hafa á einum stað fræðsluefni tengt geðheilsurækt, áhrif streitu og helstu einkenni geðraskana í þeim tilgangi að dýpka þekkingu á geðheilbrigði, áhættuþáttum, meðferðarúrræðum og stuðla að geðheilbrigði.
Helgi Hjálmtýsson, 13/3 2009

Drengur á grasi
Ýmis kynningarmyndbönd er að finna á Youtube.com þar sem starfssemi kirkjunnar er kynnt og fólk hvatt til að nýta sér hana.
Hér má sjá nokkur þessara myndbanda.
Helgi Hjálmtýsson, 13/3 2009
Útför Páls Magnússonar frá Bíldudal fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 14. mars 2009.
Páll var fæddur 5. október 1921 en lést þann 1. mars síðastliðinn á Heilbrigðisstofnuninni Patreksfirði.
Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir jarðsyngur. Jarðsett verður í Bíldudalskirkjugarði. Marion G. Worthmann er organisti og kórstjóri kórs Bíldudalskirkju.
Helgi Hjálmtýsson, 5/3 2009