Guðsþjónusta í Hallgrímskirkju
Á föstudaginn langa er guðsþjónusta í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Tónlistarflutningur er tengdur föstudeginum langa, m.a. verður Lacrimosa úr Mozart Requiem flutt af félögum úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson.
6. apríl 2012