Hátíðarguðsþjónusta í Hallgrímskirkju
Á páskadagsmorgunn kl. 08.00 er hátíðarguðsþjónusta í Hallgrímskirkju. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Magneu Sverrisdóttur djákna. Páskatónlist: Páskahelgileikur úr Hólabók frá 1589 fluttur af Mótettukór Hallgrímskirkju og einsöngvurum úr röðum kórfélaga. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
8. apríl 2012