Helgistund í Barmahlíðinni
Sumardagurinn fyrsti er Barmahlíðardagurinn á Reykhólum en þann dag er haldin hátíð á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Barmahlíð.
Undanfarin ár hefur hátíðin hafist á helgistund á Dvalarheimilinu og svo verður að sjálfsögðu í ár. Hún Snúlla ætlar að spila fyrir okkur á harmaonikkuna en hún Snúlla kemur að handan þ.e. frá Hólmavík og heitir Ásdís Jónasdóttir.
Ýmislegt fleira er gert til hátíðarbrigða og kemur m.a. handavinnusýning og kaffisala við sögu.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/reykholar
19. apríl 2012