Málþing um guðþjónustuna verður haldið þriðjudaginn 29. september klukkan 20.30
í safnaðarheimili Neskirkju. Námskeiðið er á vegum Kvennakirkjunnar og Örþingsnefnd Þjóðkirkjunnar.
Séra Kristján Valur Ingólfsson og séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir sem fagna 35 ára vígsluafmæli þennan dag flytja stutt erindi. Erindi séra Kristjáns fjallar um messusiði, forna og færanlegia, nýja og notaða og séra Auður spyr hvort þjóðkirkjumessan sé óhagganleg eða hvort við viljum breyta einhverju og hvort kirkjan þiggi tillögur. Kvöldhressing verður borin fram og þinginu lýkur klukkan 22.