Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 27. júní 2010

Fjórði sunnudagur eftir Þrenningarhátíð

Leiðbeiningar bænalífið

"pílagrímur einn dag" Ganga um Síldarmannagötur að FitjakirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2282

Nánari upplýsingar veitir Hulda Guðmundsdóttir í síma 8932789 og khuldag@hive.is

27. júní 2010

Ástin sigrar - guðsþjónusta tileinkuð hjónabandinu í GrafarvogskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2288

Fögnum einum hjúskaparlögum í guðsþjónustu Grafarvogskirkju sunnudaginn 27. júní kl. 11:00. Þennan dag, sem er alþjóðlegur baráttudagur samkynhneigðra, taka ein hjúskaparlög gildi á Íslandi. Frá og með þessum degi geta karlar gifst körlum, konur konum, karlar konum og konur körlum.

Í Grafarvogskirkju verður guðsþjónusta dagsins sérstaklega tileinkuð hjónabandinu. Hjónavígslusálmar verða sungnir og leikin tónlist sem minnir okkur á ástina. Öll hjón, verðandi hjón og þau sem vilja fagna því að enn fleiri fái nú aðgang að hjónabandinu eru sérstaklega hvött til þess að mæta og fagna ástinni í orði og tónum.

Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á brúðartertu. Séra Guðrún Karlsdóttir þjónar ástamt messuþjónum. Organisti er Guðlaugur Viktorsson og kvartett sunnudagsins leiðir söng.

Þú ert hjartanlega velkomin/n!

Sjá nánar: http://grafarvogskirkja.is

27. júní 2010

BarokkmessaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2286

Hóladómkirkja

Barokkmessa kl. 11:00

Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup messar.

Barokkkór og hljómsveit taka þátt í messunni.

Sjá nánar: http://kirkjan.is/holadomkirkja

27. júní 2010

Gleðimessa í LangholtskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2291

Gleðimessa veðrur í Langholtskirkju. Grétar Einarsson flytur hugvekju í tilefni þess að ný hjúskaparlög taka gildi þennan dag. Sr. Jón Helgi Þórarinsson þjónar fyrir altari og Graduale nobili syngur. Organisti er Jón Stefánsson.

Sjá nánar: http://langholtskirkja.is

27. júní 2010

Guðsþjónusta í MosfellskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2302

Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl.11

Ferming

Prestur:sr.Ragnheiður Jónsdóttir

27. júní 2010

Göngumessa upp á Ásfjall.Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2303

Lagt af stað í göngumessuna kl. 11 frá Ástjarnarkirkju, Kirkjuvöllum 1 Hafnarfirði. Lesið upp úr Fjallræðunni á leiðinni. Þema ræðunnar á fjallinu verður samkynhneigð, gagnkynhneigð og kristni.

Allir hjartanlega velkomnir. Helga Þórdís Guðmundsdóttir tónlistarstjóri og séra Bára Friðriksdóttir leiða stundina.

Sjá nánar: http:// www.astjarnarkirkja.is

27. júní 2010

Helgistund á Esjubergi á KjalarnesdögumVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2305

Sunnudaginn 27. júní nk. kl 14 minnast Kjalnesingar þess að samkvæmt Landnámu stóð vagga kristinnar trúar á Kjalarnesi þar sem Örlygur Hrappson byggði fyrstu kirkju á Íslandi. Í tilefni þess verður helgistund að Esjubergi sem dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur og sr. Gunnþór Ingason, sérsþjónustuprestur á sviði þjóðmenningar, stýra. Að henni lokinni bjóða sögufélagið Steini og sóknarnefnd Brautarholtssóknar til kirkjukaffis í Klébergsskóla.

Dr. Gunnar Kristjánsson flytur hugleiðingu þar sem hann horfir til sögunnar, Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir segir frá Örlygi Hrappssyni frá Suðureyjum, sr. Gunnþór Ingason fjallar um heilagan Patrek, postula Írlands og Þórarinn Þórarinsson um Hof í Kjalnesingasögu. Tónlistarflutningur verður í umsjón Guðlaugs Viktorssonar og Eggerts Pálssonar. Allir eru velkomnir.

Sjá nánar: http://kirkjan.is

27. júní 2010

Messa í gömlu ÁrneskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2243

Sunnudaginn 27. júní kl. 14 er afmælismessa í gömlu kirkjunni í Árnesi á Ströndum.

27. júní 2010

Tónleikar í HóladómkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2287

Tónleikar kl. 14.00

Lokatónleikar Barokkhátíðar 2010.

Efnisskráin er blanda af fyrir fram æfðu efni og afrakstri hátíðarinnar.

Ókeypis aðgangur

Allir velkomnir

Sjá nánar: http://kirkjan.is/holadomkirkja

27. júní 2010

Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2010Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2194

Hörður Áskelsson, kantor Hallgrímskirkju, og Jessica Buzbee básúnuleikari

Tónleikarnir hefjast kl. 17.00

Aðgangseyrir kr. 1.500

Sjá nánar: http://www.listvinafelag.is

27. júní 2010

Gleðimessa á MöðruvöllumVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2289

Á Möðruvöllum í Hörgárdal verður gleðimessa sunnudagskvöldið 27. júní kl. 20:30.

Gleðiefni: Ein hjúskaparlög á Íslandi. Fjórir prestar þjóna. Mikill almennur gleðisöngur. Messukaffi í Leikhúsinu á eftir. Allir velkomnir.

Sjá nánar: http://www.facebook.com/pages/Akureyri-Iceland/Modruvallakirkja/147286146804?ref=ts

27. júní 2010

Hjónabandsmessa í GarðakirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2290

Í tilefni af því að ein hjúskaparlög taka gildi á Íslandi sunnudaginn 27. júní ætla prestahjónin Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir að bjóða upp á hjónabandsmessu Garðakirkju á Garðaholti sem er ein vinsælasta brúðkaupskirkja á landinu. Þetta er sameiginleg kvöldmessa Garða-og Laugarnesprestakalls sem hefst kl.20.

Það verður boðið upp á akstur frá Vídalínskirkju í Garðabæ og frá Laugarneskirkju kl.19:30. Hjónin Jóna Hrönn og Bjarni ætla að predika saman um gildi og gæði hjónabandsins og hjónin Kirstín Erna Blöndal og Örn Arnarson kenna brúðkaupssálma og syngja ástarsöngva ásamt Jóhanni Baldvinssyni organista.

Einnig gefst fólki tækifæri til að endurnýja hjúskaparheitið og ganga til altaris. Það er undursamlega falleg sumarkvöldin á Garðaholtinu. Garðakirkja er þar í einstakri umgjörð sveitarinnar með fuglasöng og hestum í túni.

Hjónabandið er ein mikilvægasta stofnun samfélagsins og við eigum að hefja það upp til vegs og virðingar og leggja okkur fram um að rækta það. Allir velkomnir.

Sjá nánar: http://gardasokn.is

27. júní 2010

Helgiganga við ÖnundarfjörðVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2242

Laugardagskvöldið 26. júní verður helgiganga við sunnanverðan Önundarfjörð. Hún hefst með messu í Kirkjubólskirkju í Valþjófsdal. Í stað predikunar verða svo fjörurnar gengnar út á Ingjaldssand og þar lýkur messunni í Sæbólskirkju. Á göngunni getur fólk fylgst með miðnætursólinni. Athugið að endanleg tímasetning liggur ekki fyrir því taka verður tillit til flóðs og fjöru.

Daglega frá 26. júní 2010 til 27. júní 2010