Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 19. febrúar 2012

Sunnudagur í föstuinngangi (Estomihi)

Leiðbeiningar bænalífið

Guðsþjónusta LágafelliVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3869

Guðsþjónusta Lágafellskirkju sunnudaginn 19 febr kl 11.00

Sr Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari og predikar.

Kirkjukór Lágafellssóknar syngur, einsöngvari er Arnþrúður Ösp Karlsdóttir.

Arnhildur Valgarðsdóttir leikur á orgel, Hugrún E. Sigurðardóttir á básúnu og Andrea D. Pálsdóttir á þverflautu.

Sunnudagaskóli kl 13.

Umsjón hafa Hreiðar Örn og Arnhildur.

19. febrúar 2012

Messa og barnastarf í Hallgrímskirkju - Opnun myndlistarsýningarVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3875

Á sunnudaginn 19. febrúar, sem er sunnudagur í föstuinngang, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Á eftir messunni er opnun myndlistarsýningar: Kirkjan og fjallið. Sýnd eru málverk og teikningar af Hallgrímskirkju og fjöllum eftir Inga Hrafn Stefánsson sem er sérstakur áhugamaður um Hallgrímskirkju. Sýningarstjóri er Kristinn Guðbrandur Harðarson. Kaffisopi á eftir. Allir hjartanlega velkomnir.

19. febrúar 2012

Messa og sunnudagaskóli í BreiðholtskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3871

Messa kl. 11. Sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari, organisti er Örn Magnússon og kór kirkjunnar syngur. Messuhópur tekur virkan þátt og fermingarbörn eru hvött til þátttöku. Sálmarnir sem sungnir verða eru nr. 584, nr. 9, nr. 25 og nr. 343 og 366. Kaffisopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón djákna kirkjunnar Nínu Bjargar Vilhelmsdóttur. Söngur, sögur og fræðsla í bland við gleði og umhyggju. Sunnudagaskólinn er fyrir börn á öllum aldri sem vilja eiga góða stund í kirkjunni á sunnudagsmorgnum. Hressing í lokin fyrir börn og fullorðna.

Sjá nánar: http://breidholtskirkja.is

19. febrúar 2012

SunnudagaskóliVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3864

Sunnudagaskóli í Miklabæjarkirkju kl. 11.15.

Sjá nánar: http://kirkjan.is

19. febrúar 2012

Guðsþjónusta á Landspítala LandakotiVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3868

Guðsþjónusta á Landspíta Landakoti kl 14 á stigapalli á 2 hæð. Prestur Bragi Skúlason og organisti Ingunn Hildur Hauksdóttir

19. febrúar 2012

Messa í GoðdalakirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3863

Messa í Goðdalakirkju kl. 14. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Thomasar Higgerson. Amalía Sumarrós Stefánsdóttir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Þórdís Inga Pálsdóttir, fermingarbörn vorsins leika á hljóðfæri.

Sjá nánar: http://kirkjan.is

19. febrúar 2012

Kaffihúsamessa og Sunnudagaskóli, VopnafirðiVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3876

Á konudaginn verður kaffihúsamessa í Kaupvangskaffi. Sunnudagaskóli verður á sama tíma í Múlastofu. Léttir sálmar og söngvar og umgjörðin með kaffihúsabrag.

Við messuna syngur Karlkór Vopnafjarðar, leiðtogaefni sem hafa tekið þátt í Farskóla kirkjunnar á Norðausturlandi verða útskrifuð og unglingar munu selja happdrættismiða í Vinahappdrætti æskulýðsfélagsins.

Gott að koma tímanlega og fá sér kaffibolla og meðlæti og njóta svo samverunnar í messunni.

Sjá nánar: http://kirkjan.is/hofsprestakall/2012/02/17/kaffihusamessa-i-kaupvangskaffi-og-sunnudagaskoli/

19. febrúar 2012