Sumardagurinn fyrsti í Árbæjarkirkju Árbæingar og nærsveitamenn fagna sumri með skrúðgöngu sem endar við opnar dyr kirkjunnar. Þökkum fyrir veturinn og tökum fagnandi á móti hækkandi sól og dillandi hlátri sumars með fjölskylduguðsþjónustu kl.11.00- Rebbi refur og mýsla eru að máta stuttbuxurnar og æfa sumarlögin með organistanum. Sumar og sól og gleði fram eftir degi. Láttu sjá þig í fjölskyldumessu í Árbæjarkirkju á sumardeginum fyrsta. Við tökum vel á móti þér og þínum með sólskinsbros!
Sjá nánar: http://arbaejarkirkja.is 19. apríl 2012 Sumri fagnað í Fella- og Hólakirkju! Á sumardaginn fyrsta verður sannkölluð tónlistarveisla í Fella- og Hólakirkju. Kór kirkjunnar flytur falleg vorlög og kafla úr Messu í G-dúr eftir Franz Schubert undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur. Undirleik á orgel annast Björn Steinar Sólbergsson og Eyrún Ósk Ingólfsdóttir, sópran, syngur einsöng. Þórey Dögg Jónsdóttir djákni flytur hugleiðingu. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson, sr. Svavar Stefánsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir.
Verið innilega velkomin að fagna sumri saman á sumardaginn fyrsta í Fella- og Hólakirkju.
Sjá nánar: http://fellaogholakirkja.is 19. apríl 2012 Helgistund í Barmahlíðinni Sumardagurinn fyrsti er Barmahlíðardagurinn á Reykhólum en þann dag er haldin hátíð á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Barmahlíð.
Undanfarin ár hefur hátíðin hafist á helgistund á Dvalarheimilinu og svo verður að sjálfsögðu í ár. Hún Snúlla ætlar að spila fyrir okkur á harmaonikkuna en hún Snúlla kemur að handan þ.e. frá Hólmavík og heitir Ásdís Jónasdóttir.
Ýmislegt fleira er gert til hátíðarbrigða og kemur m.a. handavinnusýning og kaffisala við sögu.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/reykholar 19. apríl 2012 Hofteigskirkja á sumardaginn fyrsta Hátíðarmessa verður í Hofteigskirkju á Jökuldal á sumardaginn fyrsta kl. 14:00. Fermd verður Guðný Edda Guðmundsdóttir frá Hrólfsstöðun á Jökuldal.
19. apríl 2012 Styrktartónleikar fyrir Menningarsal Oddasóknar á Hellu Sumardaginn fyrsta 19. apríl kl. 14:00.
Fram koma: Samkór Rangæinga, Leikfélag Rangæinga, Harmonikufélag Rangæinga, Kvennakórinn Ljósbrá, Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkna, Karlakór Rangæinga og Karlakórinn Þrestir, eldri félagar.
Miðaverð 2000, frítt fyrir 16 ára og yngri.
Innifalið í miðaverði er kaffi og meðlæti að hætti Kvenfélagsins Unnar.
Allur ágóði af tónleikunum rennur til Menningarsalarins.
Lesa má frétt um tónleikana á dfs.is:
http://dfs.is/frettir/1623-menningarsalur-oddasoknar-a-hellu-
Sjá nánar: http://kirkjan.is/oddaprestakall 19. apríl 2012 |