Páskavaka í Staðarfellskirkju Á aðfangadag páska, laugardaginn 7. apríl, kl. 21 verður páskavaka í Staðarfellskirkju. Kveikt verður á páskakertinu í upphafi stundarinnar í myrkvaðri kirkjunni og smátt og smátt fyllist kirkjan af ljósi. Í athöfninni undirbúum við okkur fyrir stærstu hátíð kristinna manna.
Prestur: Óskar Ingi Ingason. Organisti: Halldór Þorgils Þórðarson. Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir sönginn.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/dalaprestakall/ 7. apríl 2012 Páskavaka í Glerárkirkju Kristin kirkja um alla veröld fagnar upprisu Krists á páskum. Víða um heim koma kristnir einstaklingar saman aðfaranótt páskadags, hugleiða og upplifa sigur lífsins, vonina sem vaknar í myrkrinu. Í Glerárkirkju leiðir sr. Gunnlaugur Garðarsson páskavöku sem hefst kl. 23:00. Sér við hlið hefur hann Valmar Väljaots og Kór Glerárkirkju. Allir velkomnir.
Sjá nánar: http://www.glerarkirkja.is/is/kirkjan/news/paskavaka-laugardagskvoldid-7.-april/ 7. apríl 2012 Páskavaka í Húsavíkurkirkju Páskavaka verður haldin í 8. skipti í Húsavíkurkirkju laugardagskvöldið 7. apríl kl. 23.30 í þann mund sem Páskahátíðin gengur í garð. Foreldrar fermingarbarna lesa úr ritningunni í upphafi. Fermingarbörn aðstoða við framkvæmd vökunnar. Kirkjugestum gefst kostur á því að minnast skírnar sinnar á áhrifaríkan hátt. Í lokin verður boðið upp á smökkun á Páskalambi.Fjölmennum.
Sjá nánar: http://www.husavikurkirkja.is 7. apríl 2012 |