Guðsþjónusta á Landspítala við Hringbraut Guðsþjónusta Landspítala við Hringbraut kl. 10:30 á stigapalli á 3ju hæð. Prestur Sigfinnur Þorleifsson og organisti Helgi Bragason
13. maí 2012 Kveðjumessa í Hjallakirkju Sunnudaginn 13. maí kl. 11 verður kveðjumessa í Hjallakirkju, í tilefni þess að sr. Íris Kristjánsdóttir mun kveðja Hjallasöfnuð í sumar. Sr. Íris heldur af stað til nýrra prestsstarfa í Kanada en hún hefur verið prestur í Hjallakirkju í tæp 16 ár. Við messuna þjóna báðir prestar kirkjunnar, sr. Íris og sr. Sigfús Kristjánsson. Kór kirkjunnar syngur og Jón Ólafur Sigurðsson leikur á orgelið. Að messu lokinni verður viðstöddum boðið að þiggja léttar veitingar í boði safnaðarins. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Sjá nánar: http://hjallakirkja.is 13. maí 2012 Messa flutt í Hafnarfjarðarkirkju eftir dr. Victor Urbancic. Messa kl. 11 í Hafnarfjarðarkirkju. sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar. Barbörukórinn syngur við athöfnina undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Flutt verður: "Messa til heiðurs Drottni vorum Jesú Kristi konungi" eftir dr. Victor Urbancic.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á sama tíma. Verið hjartanlega velkomin.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/hafnarfjardarkirkja/ 13. maí 2012 Messa í Breiðholtskirkju Messa kl. 11, hinn almenni bænadagur. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, organisti Örn Magnússon, félagar úr kór kirkjunnar syngja. Messuhópur tekur virkan þátt. Umjöllunarefni messunnar er bænin, bænheyrsla og blessun bænalífsins. Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið velkomin!
Sjá nánar: http://breidholtskirkja.is 13. maí 2012 Messa í Hallgrímskirkju - Bænadagurinn Á sunnudaginn 13. maí, sem er fimmti sunnudagur eftir páska, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Gestakór frá University of Manitoba í Kanada syngur í messunni. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
13. maí 2012 Vorferð Sunnudagaskóla Reykhólakirkju Þrátt fyrir slæma veðurspá þá förum við í vorferðina okkar enda ekki langt að fara að þessu sinni. Við ætlum að heimsækja kirkjuna, fólkið og dýrin á Stað.
Hittumst í Reykhólakirkju kl. 11:00 og förum öll samferða. Ef veðrið er mjög vont þá borðum við nestið okkar þegar við komum til baka. Munum eftir að klæða okkur vel.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/reykholar 13. maí 2012 Vorhátíð Árbæjarsafnaðar - Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00 Fjölskylduguðsþjónusta 13. maí Vorhátíð Árbæjarsafnaðar
Sunnudaginn13. maí verður vorhátíð sunnudagaskólans. Hátíðin hefst kl.11.00 en þá verður slegið upp fjölskylduguðsþjónustu með þátttöku einhverra iðkenda íþróttafélagsins Fylkis. Eftir samveruna verður boðið upp á grillaðar pylsur og meðlæti.
Sjá nánar: http://www.arbaejarkirkja.is 13. maí 2012 Helgistund í Barmahlíðinni Helgistund verður á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Barmahlíð kl. 14:30.
Harmonikkan hljómar í höndum Guðrúnar, sem komin er til að leysa Þuríði hjúkrunarforstjóra af í sumar.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/reykholar 13. maí 2012 Guðsþjónusta Lágafellskóla Kvöldguðsþjónusta í umsjá beggja presta safnaðarins, skráning fermingarbarna 2013, hljómsveitin Tilviljun leikur.
13. maí 2012 |