40 ára vígsluafmæli Hveragerðiskirkju Hveragerðiskirkja var vígð 14. maí 1972.
Vígslunnar verður minnst sunnudaginn 20. maí 2012.
Hátíðarmessa kl. 11:00. Herra Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti prédikar. Veitingar verða í boði sóknarinnar að messu lokinni.
Dagskrá fyrir börn og unglinga kl. 14:00 í umsjá æskulýðsstarfs kirkjunnar KFUM/KFUK. Hoppukastali verður á staðnum og fleira sér til gamans gert.
Kirkjukór og barnakór synjga kl. 17:00 undir stjórn Gróu Hreinsdóttur, organista.
Myndlistarsýning verður í kirkjunni í tilefni afmælisins. Guðrún Tryggvadóttir sýnir trúarleg verk. Sjá: http://www.art-ad.is og www.nattura.is.
Kirkjustarf í Hveragerði er komið á Fésbókina: http://www.facebook.com/Hveragerdiskirkja.
20. maí 2012 Messa í Áskirkju Messa í Áskirkju kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir settur héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Forsöngvari Hjálmar P. Pétursson, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi eftir messu.
Sjá nánar: http://www.askirkja.is 20. maí 2012 Messa og aðalsafnaðarfundur í Breiðholtssókn. Messa kl. 11 sunnudaginn 20. maí. Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Örn Magnússon, kór kirkjunnar syngur. Messuhópur tekur virkan þátt og les m.a. ritningarorð og flytur bænir. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu að messu lokinni og síðan hefst aðalsafnaðarfundur sóknarinnar. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Sjá nánar: http://breidholtskirkja.is 20. maí 2012 Messa og sögustund fyrir börnin í Hallgrímskirkju Á sunnudaginn 20. maí, sem er sjötti sunnudagur eftir páska, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum úr KFUM og K. Þórarinn Björnsson guðfræðingur prédikar. Karlakór KFUM og K leiðir messusönginn undir stjórn Laufeyjar Geirlaugsdóttur. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Sögustund er fyrir börnin. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
20. maí 2012 Guðsþjónusta á Landspítala Landakoti Guðsþjónusta á Landspítala Landakoti kl. 14 á stigapalli á 2 hæð. Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson og Ingunn Hildur Hauksdóttir
20. maí 2012 Grensáskirkja Morgunverður kl. 10. Bænastund kl. 10:15.
Messa kl. 11. Altarisganga.
Samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Messuhópur þjónar.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur og organisti er Árni Arinbjarnarson.
Prestur sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir.
Kaffisopi eftir messu.
Sjá nánar: http://grensakirkja.is Daglega frá 16. maí 2012 til 21. maí 2012 |