Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 28. maí 2012

Annar hvítasunnudagur

Leiðbeiningar bænalífið

Messa í Hallgrímskirkju á annan í hvítasunnuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4155

Mánudaginn 28. maí, sem er annar í hvítasunnu, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

28. maí 2012

KolaportsmessaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4159

Á annan í hvítsunnu kl. 14 verður guðsþjónusta í Kaffi Port í Kolaportinu. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina. Sr. Hjálmar Jónsson leiðir samveruna og Ragnheiður Sverrisdóttir prédikar.Tekið á móti fyrirbænarefnum á undan stundinni.

28. maí 2012

Kveðjumessa í DölumVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4140

Kveðjumessa verður í Hjarðarholtskirkju á annan í hvítasunnu, 28. maí, kl. 14. Séra Óskar Ingi kveður söfnuðina eftir 17 ára þjónustu, en hann er frá 1. júní næstkomandi skipaður sóknarprestur Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalls. Boðið verður upp á kaffi eftir athöfn.

Sjá nánar: http://kirkjan.is/dalaprestakall/

28. maí 2012

Mótorhjólamessa í Digraneskirkju kl. 20Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4114

Mótorhjólamessan er árlegur viðburður á öðrum degi hvítasunnu þar sem hinir ýmsu mótorhjólaklúbbar ríða fákum sínum í fylkingum til Digraneskirkju.

Sjaldan koma svo mörg vélhjóla saman á einum stað svo almenningi gefst tækifæri á því að skoða fákana og spjalla við ökumenn þeirra.

Messan er ALVÖRU messa, með prédikun og altarisgöngu, svo það er ekkert slegið af í helgihaldinu, þó svo umbúnaðurinn sé sveipaður léttleika og prestarnir (sem verða að vera mótorhjólafólk) eru búnir sama klæðnaði og viðbúið er af vélhjólafólki (hefðbundnum öryggisbúnaði vélhjólamanna). Leður og Goretex er því viðeigandi klæðnaður.

Meira hér: http://www.digraneskirkja.is/athafnir/hvitasunna/

Sjá nánar: http://www.digraneskirkja.is/athafnir/hvitasunna/

28. maí 2012