Tónleikar með dönsku miðaldasveitinni Via Artis Konsort og færeyska kórnum Mpiri ásamt gestum úr íslensku sveitinni Voces Thules þann 4. maí 2012 kl. 20. Aðgangseyrir 1500 kr.
Markmið verkefnisins er að endurskapa menningu miðalda með því að flytja tónleika og vinnustofur á völdum stöðum innan Skandinavísku pílagrímsfararleiðarinnar; allt frá Esrum Abbey í Danmörku, gegnum Svíþjóð, til Nidaros í Noregi og loks á völdum stöðum á Íslandi og í Færeyjum.
Via Artis Konsort er alþjóðleg sveit sem leggur áherslu á leyndar tónlistargersemar frá seinni miðöldum og fram til klassíska tímabilsins. Mpiri er Færeysk raddsveit í Kaupmannahöfn sem samanstendur af 15 reynslumiklum söngvurum frá Færeyjum, Íslandi og Danmörku.