Guðsþjónusta á þýsku Sunnudaginn 12. ágúst næstkomandi gerumst við árrisul í Glerárkirkju og bjóðum alla velkomna í guðsþjónustu klukkan níu um morguninn. Guðsþjónustan verður í umsjón sr. Alfred Essig frá Brackenheim í Þýskalandi og verður guðsþjónustan alfarið á þýsku. Að henni lokinni mun Pétur Björgvin segja frá safnaðarstarfinu og stöðu íslensku kirkjunnar í stuttu erindi í safnaðarsalnum. Það erindi verður sömuleiðis aðeins á þýsku. Dagskráin er opin öllum sem áhuga hafa.
Sjá nánar: http://www.glerarkirkja.is/is/kirkjan/news/gudsthjonusta-a-thysku 12. ágúst 2012 Kirkjugrallaranámskeiðið í Ástjarnarkirkju 7.-17. ágúst Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 6-9 ára, (fædd 2003-2005). Dagskráin verður fjölbreytt, og gefst börnunum kostur á að kynnast kirkjunni sinni og boðskap hennar í leik og starfi. Auk þess förum við í stuttar gönguferðir um nágrennið, hjóla- og sundferðir, föndrum og margt fleira. Í lok námskeiðsins sláum við svo upp uppskeruhátið og grillum pylsur og höfum það gaman saman.
Sjá nánar: http://www.astjarnarkirkja.is/kirkjugrallarar/skraning/ Daglega frá 7. ágúst 2012 til 17. ágúst 2012 Leikjanámskeið fyrir 12-14 ára 1.- 16. ágúst í Ástjarnarkirkju Spennandi útivistarnámskeið fyrir 12-14 ára börn búsett í Áslandi og Vallarhverfi.
Tímabil: 1-16 ágúst, mæting kl 9 fh. til ca 16 eh
Þátttökukröfur: vera 12-14 ára, hafa reiðhjól, hjálm, gönguskó og vilja til útivistar.
Verkefni námskeiðsins: Ratleikur Hafnarfjarðar, 27 spjöld samkvæmt ratleikskorti.
Þema ratleiksins í ár eru HELLAR (gott að hafa vasaljós)
Þátttakendur: koma með sitt nesti fyrir hvern dag.
Þátttökugjald: EKKERT
Sjá nánar: http://astjarnarkirkja.is Daglega frá 1. ágúst 2012 til 16. ágúst 2012 Útivistarnámskeið fyrir 12-14 ára börn búsett í Áslandi og Vallarhv Þátttökukröfur: vera 12-14 ára, hafa reiðhjól, hjálm, gönguskó og vilja til útivistar.
Verkefni námskeiðsins: Ratleikur Hafnarfjarðar, 27 spjöld samkvæmt ratleikskorti.
Þema ratleiksins í ár eru HELLAR (gott að hafa vasaljós)
Þátttakendur: koma með sitt nesti fyrir hvern dag.
Þátttökugjald: EKKERT
Skráning hjá bryndissvavars@gmail.com
Sjá nánar: http://astjarnarkirkja.is Daglega frá 1. ágúst 2012 til 16. ágúst 2012 Hólahátíð 10. - 12. 2012 Sunnudagur 12. ágúst
Dagskrá sunnudagsins hefst með morgunsöng í Hóladómkirkju klukkan 9 og síðan verður dagskrá í Auðunarstofu kl. 11:00 með opnun sýningar um Guðbrand Þorláksson biskup. Ragnheiður Traustadóttir kynnir.
Hátíðarmessa verður í Hóladómkirkju kl. 14. Biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir vígir séra Solveigu Láru Guðmundsdóttur til biskups í Hólastifti. Kórar Hóladómkirkju og Möðruvallaklausturskirkju syngja. Organistar og kórstjórar Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Jóhann Bjarnason. Kirkjukaffi að lokinni messu.
12. ágúst 2012 Safnaðarferð Áskirkju að Borg á Mýrum Sumarferð Safnaðarfélags Áskirkju verður farin sunnudaginn 12. ágúst. Lagt af stað frá Áskirkju kl. 10:30 og haldið í Borgarnes, snæddur hádegisverður þar og síðan ekið að Borg á Mýrum. Messað verður í Borgarkirkju kl. 14. Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason þjónar fyrir altari og sr. Sigurður Jónsson prédikar. Ásdís P. Blöndal djákni les ritningarlestra, Magnús Ragnarsson leikur á orgel og forsöngvari verður Þórunn Elín Pétursdóttir. Að guðsþjónustu lokinni verður drukkið kaffi á Hótel Hamri og þaðan liggur leiðin á ný suður á bóginn.
Sjá nánar: http://askirkja.is 12. ágúst 2012 Guðsþjónusta í Brautarholtskirkju Guðsþjónusta í Brautarholtskirkju á tíunda sunnudegi eftir þrenningarhátíð. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar fyrir altari. Páll Helgason leikur á orgel og félagar úr karlakór Kjalarness leiða söng.
Sjá nánar: http://kjalarpr.is 12. ágúst 2012 Heilsustofnun NLFÍ Guðsþjónusta kl. 11:00
Sóknarprestur
12. ágúst 2012 Messa í Breiðholtskirkju Messa í Breiðholtskirkju sunnudaginn 12. ágúst kl. 11. Sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina.
Sjá nánar: http://breidholtskirkja.is 12. ágúst 2012 Messa í Digraneskirkju Messa er í Digraneskirkju kl. 11. Prestur er sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti Zbigniew Zuchowicz. Helgihaldið er hluti af sumarsamstarfi þjóðkirkjunnar í Kópavogi.
Sjá nánar: http://kopakirkjur.blogspot.com 12. ágúst 2012 Messa í Háteigskirkju Sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari við messu í Háteigskirkju kl. 11. Organisti er Kári Allansson og kirkjukórinn leiðir almennan söng.
Sjá nánar: http://hateigskirkja.is 12. ágúst 2012 Messa í Kópavogskirkju Messað er í Kópavogskirkju kl. 11. Prestur er sr. Sigurður Arnarson. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Helgihaldið er hluti af sumarsamstarfi þjóðkirkjunnar í Kópavogi.
Sjá nánar: http://kopakirkjur.blogspot.com 12. ágúst 2012 Messa og sextugsafmæli í Guðríðarkirkju Messa í Guðríðarkirkju kl. 11. Séra Karl Valgarður Matthíasson messar, en hann verður einmitt sextugur þennan sama dag. Organisti Hrönn Helgadóttir, kór Guðríðarkirkju syngur, kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir og meðhjálpari Aðalsteinn Dalmann Októsson. Kirkjukaffi eftir messu.
12. ágúst 2012 Messa og sögustund fyrir börnin í Hallgrímskirkju Á sunnudaginn 12. ágúst, sem er tíundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Sögustund er fyrir börnin og kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
12. ágúst 2012 Skírnar- og fermingarmessa í Lágafellskirkju Messa í Lágafellskirkju . Barn borið til skírnar og fermdur Arnar Snær Pálsson. sr.Ragnheiður Jónsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar.
12. ágúst 2012 Sunnudagaskóli í Lindakirkju Sunnudagaskóli í Lindakirkju í Kópavogi. Fjörug dagskrá með útileikjum, ef veður leyfir. Sunnudagaskólinn í Lindakirkju verður haldinn alla sunnudaga í sumar.
12. ágúst 2012 Újtvarpað verður Gleðimessu i Grafarvogskirkju Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar ásamt messuþjónum og fermir eina stúlku. Hákon Leifsson spilar og kvartett á vegum Samtakanna 78 syngur.
Sjá nánar: http://grafarvogskirkja.is 12. ágúst 2012 Kvöldguðsþjónusta í Þingmúlakirkju Guðsþjónusta verður í Þingmúlakirkju sunnudaginn 12. ágúst kl. 20.
Davíð Þór Jónsson, guðfræðingur prédikar og leiðir helgihaldið.
Organisti er Kristján Gissurarson. Kór Vallanes- og Þingmúlasókna leiðir söng.
Allir eru velkomnir.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/austurland 12. ágúst 2012 |