Guðsþjónusta í Ólafsfjarðarkirkju - Berjadagar Guðsþjónusta verður sunnudaginn 19. ágúst kl. 11:00 í Ólafsfjarðarkirkju.
Brasskvintett Berjadaga annast tónlistarflutning ásamt organista og kór kirkjunnar.
Verum öll velkomin til kirkju.
Sóknarnefnd og sóknarprestur
19. ágúst 2012 Hittumst á Bessastöðum Þig hefur lengi langað að koma í Bessastaðakirkju. Sunnudaginn 19. ágúst kl. 11.00 er sameiginleg messa safnaðanna í Garðaprestakalli. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar fyrir altari. Bjartur Logi Guðnason situr við orgelið og leiðir safnaðarsönginn. Barn borið til skírnar.
Allir velkomnir!
Sjá nánar: http://gardasokn.is 19. ágúst 2012 Hveragerðiskirkja, Guðsþjónusta Sunnudagur 19. ágúst
Hveragerðiskirkja
Guðsþjónusta kl. 11:00
Sóknarprestur messar
Organisti: Hannes Baldursson
19. ágúst 2012 Messa í Áskirkju - Guðsþjónusta á Skjóli Messa í Áskirkju sunnudaginn 19. ágúst kl. 11. Kaffisopi eftir messu. Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13. Sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Forsöngvari Pétur Húni Björnsson, organisti Magnús Ragnarsson.
Sjá nánar: http://www.askirkja.is 19. ágúst 2012 Messa í Breiðholtskirkju Sunnudaginn 19. ágúst verður messa kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Douglas Brotchie og félagar úr kór kirkjunnar syngja. Í messunni gefst gott tækifærir til þess að íhuga Guðs orð og heyra hvernig Kristur mætir okkur þar sem við erum með kærleika sinn og blessun. Molasopi er síðan í boði í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Sjá nánar: http://breidholtskirkja.is 19. ágúst 2012 Messa í Hafnarkirkju Guðsþjónusta kl. 11:00 í Hafnarkirkju
Nývígður vígslubiskup, Solveig Lára Guðmundsdóttir, prédikar og kór Möðruvallaklaustursprestakalls mun leiða söng ásamt Samkór Hornafjarðar. Sr. Gylfi Jónsson mun ávarpa söfnuðinn.
Organistar verða Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Kristín Jóhannesdóttir.
Allir velkomnir að sjá og heyra í nýjasta biskupnum okkar.
19. ágúst 2012 Messa í Hallgrímskirkju í Reykjavík Dýrð Guðs verður í miðdepli sálma og prédikunar í messu í Hallgrímskirkju kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Hörður Áskelsson leikur á Klaisorgelið og félagar úr Mótettukórnum leiða söng. Sögustund verður fyrir börnin og heitt á könnunni eftir messu.
Sjá nánar: http://hallgrimskirkja.is 19. ágúst 2012 Messa í Hjallakirkju Séra Sigfús Kristjánsson þjónar. Félagar úr Kór Hjallakirkju leiða söng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson.
Sigurður Thorlacius leikur einleik á flygil verk eftir Beethoven og Ravel.
Sjá nánar: http://www.hjallakirkja.is 19. ágúst 2012 Messa í Hóladómkirkju Hóladómkirkja
Sunnudaginn 19. ágúst
Messa kl. 11:00
sr. Gunnar Jóhannesson messar
Organisti Jóhann Bjarnason
Laufey Guðmundsdóttir leiðir safnaðarsöng
19. ágúst 2012 Sunnudagaskóli í Lindakirkju Sunnudagaskóli í Lindakirkju í Kópavogi. Fjörug dagskrá með útileikjum, ef veður leyfir. Sunnudagaskólinn í Lindakirkju verður haldinn alla sunnudaga í sumar utan 5. ágúst.
Sjá nánar: http://lindakirkja.is 19. ágúst 2012 Guðsþjónusta í Keldnakirkju Guðsþjónusta í Keldnakirkju kl. 14:00.
Organisti Guðjón Halldór Óskarsson, almennur safnaðarsöngur.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/oddaprestakall 19. ágúst 2012 Kotstrandarkirkja, Guðsþjónusta Kotstrandarkikrja
Guðsþjónusta kl. 14:00
Prestur: Séra Kristin Ág. Friðfinnsson
Organisti: Hannes Baldursson
Sóknarprestur
19. ágúst 2012 Messa á Stóra- Núpi kl. 14 Síðsumarsmessa á Stóra- Núpi kl.14. Fólk er hvatt til að koma ríðandi til messu.
Tilvalið að teygja aðeins á fjallhrossunum.
19. ágúst 2012 Messa í Staðarkirkju í Reykhólahreppi Messað verður í kirkjunni á Stað á Reykjanesi kl. 14:00 Sunnudaginn 19. ágúst.
Viðar leikur á harmonikkuna og kirkjugestir syngja.
Kaffi á eftir að venju hjá Staðar- og Árbæjarfólki.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/reykholar 19. ágúst 2012 Messa í Stafafellskirkju í Lóni Guðsþjónusta kl. 14:00 í Stafafellskirkju
Kristján Valur Ingólfsson víglsubiskup mun annast guðsþjónustu í Stafafellskirkju í Lóni. Organisti verður Kristín Jóhannesdóttir.
Kirkjukaffi verður í Fundarhúsinu eftir guðsþjónustuna.
Allir velkomnir.
19. ágúst 2012 Tónleikar í Hóladómkirkju Hóladómkirkja
Sunnudaginn 19. ágúst
Tónleikar kl. 14:00
Alexandra Chernyshova sópran og Monika Aabendrof hörpuleikari
Aðgangur ókeypis
19. ágúst 2012 messa í Tungufellskirkju kl.16 Messa í Tungufelli
Hin árlega sumarmessa í Tungufellskirkju verður sungin næstkomandi sunnudag þann 19. ágúst kl.16:00.
Það er einstök upplifun að eiga helga stund í þessum látlausa helgidómi.
19. ágúst 2012 Lágafellskirkja Guðsþjónusta kl. 20 að kvöldi dags.
19. ágúst 2012 |