Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 2. september 2012

Þrettándi sunnudagur eftir Þrenningarhátíð -- Dagur díakoníunnar

Leiðbeiningar bænalífið

Guðsþjónusta á Landspítala við HringbrautVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4400

Guðsþjónusta á Landspítala við Hringbraut kl. 10:30 á stigapalli á 3ju hæð. Prestur Sigfinnur Þorleifsson. Organisti Helgi Bragason

2. september 2012

Fjölskyldumessa í GuðríðarkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4397

Fjölskyldumessa í Guðríðarkirkju. Sunnudagaskólinn byrjar. Söfnuðurinn kveður Árna Þorlák Guðnason æskulýðsfulltrúa og Berglindi Björgúlfsdóttur barnakórstjóra, sem halda nú til nýrra starfa. Dagur Kærleiksþjónustunnar. Prestur séra Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir, meðhjálpari Aðalsteinn Dalmann Októsson.

Sjá nánar: http://grafarholt.is

2. september 2012

Guðsþjónusta í Hjallakirkju í KópavogiVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4393

Guðsþjónusta kl. 11. Séra Sigurjón Árni Eyjólfsson þjónar. Félagar úr Kór Hjallakirkju syngja og leiða safnaðarsönginn. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson

Sjá nánar: http://www.hjallakirkja.is

2. september 2012

Guðsþjónusta og skírn í LangholtskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4394

Guðsþjónusta í Langholtskirkju, prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, organisti Jón Stefánsson. Skírður verður ungur drengur. Kirkjukaffi eftir messu.

Sjá nánar: http://langholtskirkja.is

2. september 2012

Hausthátíð ÁstjarnarkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4398

Hefst með fjölskyldumessu. Síðan verður grill, Ástjarkirkjuhlaupið, Daníel töframaður, hoppukastali og kynning á starfi kirkjunnar fyrir alla aldurshópa.

Sjá nánar: http://www.astjarnarkirkja.is

2. september 2012

Magnaðar mömmur! Guðsþjónusta í VindáshlíðVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4412

Guðsþjónusta í lok kvennaflokks í Vindáshlíð í Kjós. Yfirskrift helgarinnar er "Kraftur kvenna" og í guðsþjónustunni íhugum við hinar mögnuðu mömmur sem mæta okkur í Biblíunni.

Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir héraðsprestur í Kjós prédikar og þjónar ásamt tónlistarkonunni Guðrúnu Jónu Þráinsdóttur og Hlíðameyjakórnum.

2. september 2012

Messa í Áskirkju - Hafþór kirkjuvörður kvaddurVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4396

Messa í Áskirkju kl. 11. Sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ásdísi Pétursdóttur Blöndal djákna. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Að messu lokinni verður léttur hádegisverður í neðra safnaðarheimilinu, þar sem Hafþór Jónsson, fráfarandi kirkjuvörður Áskirkju verður kvaddur og heiðraður við starfslok.

Sjá nánar: http://www.askirkja.is

2. september 2012

Messa í HveragerðiskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4392

Hveragerðiskirkja.

Messa kl. 11:00, sunudaginn 2. september. Altarissakramentið.

2. september 2012

Messa í VallaneskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4388

Messað verður í Vallaneskirkju sunnudaginn 2. september kl. 11

Prestur sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir

Organisti Magnús Magnússon

Almennur safnaðarsöngur.

Fermd verður Brynhildur R Þorbjarnardóttir, Sólvöllum 16, Egilsstöðum

Allir eru velkomnir

Sjá nánar: http://kirkjan.is/austurland

2. september 2012

Messa og barnastarf í HallgrímskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4399

Á sunnudaginn 2. september, sem er þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og Magneu Sverrisdóttur djákna. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Upphaf vetrarstarfsins kynnt og allir þeir sem koma að starfinu, starfsfólk og sjálfboðaliðar. Barnastarfið er í umsjá Rósu Árnadóttur. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

2. september 2012

Messa og sunnudagaskóli í BreiðholtskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4413

Sunnudagaskólinn byrjar á ný eftir sumarleyfi næst komandi sunnudag kl. 11. Umsjón með sunnudagaskólanum hefur Þórey Dögg Jónsdóttir djákni. Skólinn byrjar í kirkjunni en síðan er farið niður í safnaðarheimili þar sem börnin fá að heyra sögu úr Biblíunni, syngja skemmtilega söngva og biðja til Jesú. Börn á öllum aldri eru velkomin. Boðið er upp á djúshressingu og kex í lokin.

Sjá nánar: http://breidholtskirkja.is

2. september 2012

Guðsþjónusta í KirkjubæjarkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4389

Guðsþjónusta verður í Kirkjubæjarkirkju sunnudaginn 2. september kl. 14

Prestur sr. J'ohanna I. Sigmarsdóttir

Organisti Magnús Magnússon

Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna

Kaffisala Kvenfélagsins í Tungubúð eftir guðsþjónustuna.

Allir eru velkomnir

Sjá nánar: http://kirkjan.is/austurland

2. september 2012

Uppskeruhátíð og guðsþjónustaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4390

Uppskeruguðsþjónusta verður sunnudaginn 2. september kl. 14 í Brimilsvallakirkju.

Eftir guðsþjónustu er stuttur fundur með fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra þar sem farið er yfir fermingarstörf vetrarins.

Eftir guðsþjónustu verða ýmsar uppákomur, grillaðar pylsur, leikir og gefandi fjör! :-)

Allir velkomnir!

Sóknarprestur.

Sjá nánar: http://kirkjanokkar.is/uppskerumessa

2. september 2012