Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 29. apríl 2012

Þriðji sunnudagur eftir páska (Jubilate)

Leiðbeiningar bænalífið

Guðsþjónusta á Landspítala í FossvogiVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4073

Guðsþjónusta á Landspítala í Fossvogi kl 10:30 á stigapalli á 4ju hæð. Prestur Ingileif Malmberg og organisti Helgi Bragason

29. apríl 2012

Fjölskylduguðsþjónusta og Tómasarmessa í Breiðholtskirkju.Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4083

Fjölskyldumessa kl. 11 í umsjá sr. Gísla Jónassonar og Nínu Bjargar Vilhlelmsdóttur djákna. Organisti er Örn Magnússon. Kaffi og djús í safnaðarheimili á eftir.

Tómasarmessa kl. 20. Verður þetta síðasta Tómasarmessan á þessu vori. Að vanda verður boðið upp á fyrirbæn með handayfirlagningu, einnig verður boðið upp á smurningu sbr. Jak. 5:14. Tónlistinni stjórnar Þorvaldur Halldórsson og sönghópur leiðir lofgjörðina. Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Yfirskrift messunnar er: Hryggð mun snúast í fögnuð!

Sjá nánar: http://breidholtskirkja.is

29. apríl 2012

FjölskyldumessaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4070

Sunnudaginn 29. apríl kl.11:00 í Kópavogskirkju. Fjölskyldumessa með "óhefðbundnu sniði". "Vocal Project", syngur undir stjórn Matthíasar Baldurssonar og meðal annarra leikur Friðrik Karlssson undir.

Fermingarbörn næsta árs og foreldrar þeirra boðuð sérstaklega til messunnar. Eftir messu er stuttur fundur í kirkjunni um fermingarstarfið framundan.

Fjölskylduhátíð barnastarfs Kópavogskirkju eftir messu í safnaðarheimilinu "Borgum". Boðið meðal annars upp á pylsur og með því, andlitsmálun og hoppukastalar.

Allir hjartanlega velkomnir.

29. apríl 2012

Guðsþjónusta á gleðidögum í VíðistaðakirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4076

Guðsþjónusta í Víðistaðakirkju kl. 11 á þriðja sunnudegi eftir páska. Nú eru gleðidagar og það mun setja mark sitt á guðsþjónustuna. Sr. Árni Svanur Daníelsson, héraðsprestur, þjónar fyrir altari. Áslaug Bergsteinsdóttir er organisti, kór Víðistaðakirkju leiðir sönginn.

Sjá nánar: http://vidistadakirkja.is

29. apríl 2012

Guðsþjónusta Árbæjarkirkju og aðalsafnaðarfundurVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4077

Guðsþjónusta kl.11.00. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari. sr. Jón Helgi Þórarinsson prédikar. Messuþjónar lesa ritningagreinar dagsins. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. Aðalfundur safnaðarins kl.12.15. Venjuleg aðalfundarstörf.

Sjá nánar: http://arbaejarkirkja.is

29. apríl 2012

Messa í EgilsstaðakirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4082

Messa í Egilsstaðakirkju kl. 11.

Guðsþjónusta á Hjúkrunardeild HSA kl. 12.

Prestur sr. Jóhanna I Sigmarsdóttir

Organisti Torvald Gjerde

Kór Egilsstaðakirkju leiðir söng

Sjá nánar: http://kirkjan.is/austurland

29. apríl 2012

Messa og barnastarf í HallgrímskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4079

Á sunnudaginn 29. apríl, sem er þriðji sunnudagur eftir páska, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Einnig syngur kórinn Kilden frá Noregi í messunni. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

29. apríl 2012

MosfellskirkjaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4084

Almenn guðsþjónusta kl 11.00

Sr Skírnir Garðarsson þjónar.

Strandamenn syngja.

29. apríl 2012

Sunnudagaskóli í LindakirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4072

Sunnudagaskóli verður haldinn í Lindakirkju kl. 11:00 Skemmtilegur söngur, biblíusögur, brúðuleikhús og fleira.

Sjá nánar: http://lindakirkja.is

29. apríl 2012

Samkór Kópavogs syngur í LindakirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/4071

Guðsþjónusta. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar. Samkór Kópavogs syngur undir stjórn Skarphéðins Þórs Hjartarsonar.

Sjá nánar: http://lindakirkja.is

29. apríl 2012