Pílagrímaganga á Vopnafirði Föstudaginn langa verður Pílagrímaganga frá Vopnafjarðarkirkju til Hofskirkju um 15 km. leið.
Gangan hefst með helgistund í Vopnafjarðarkirkju kl. 9:30.
Bifreið fylgir göngufólki og mögulegt að ganga styttri og lengri spöl.
Sjá nánar: http://www.kirkjan.is/hof 6. apríl 2012 Guðsþjónusta - píslarsagan Guðsþjónusta er í Landakirkju föstudaginn langa með lestri píslasögunnar og hátíðlegri tónlist og kórsöng. Félagar í Leikfélagi Vestmannaeyja lesa úr píslasögunni og síðustu orð Krists á krossinum. Kór Landakirkju syngur. Organisti Kitty Kovács. Einleikari á fiðlu Balás Stankowsky. Sr. Kristján Björnsson.
Sjá nánar: http://landakirkja.is 6. apríl 2012 Guðsþjónusta í Breiðholtskirkju Guðsþjónusta kl 11. Píslarsagan lesin og íhuguð og flutt verður litanía sr. Bjarna Þorsteinssonar. Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Örn Magnússon, félagar úr kór kirkjunnar syngja. Messuhópur tekur virkan þátt í guðsþjónustunni.
Sjá nánar: http://breidholtskirkja.is 6. apríl 2012 Guðsþjónusta í Hallgrímskirkju Á föstudaginn langa er guðsþjónusta í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Tónlistarflutningur er tengdur föstudeginum langa, m.a. verður Lacrimosa úr Mozart Requiem flutt af félögum úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson.
6. apríl 2012 Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni Á Föstudaginn langa verða Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni af 10 sóknarmönnum frá kl. 11 til 15.30. Tónlist leikin að loknum fimmta hverjum sálmi. Gestabók og Passíusálmar í anddyri. Velkomin að líta við í kirkjunni og hlýða á lesturinn.
Sjá nánar: http://www.husavikurkirkja.is 6. apríl 2012 Píslarganga í Fljótsdal Píslarganga verður gengin frá Valþjófsstaðarkirkju í Skriðuklaustur á Föstudaginn langa. Gangan hefst með stuttri bænastund og lestri passíusálma í Valþjófsstaðarkirkju kl. 11:oo og lýkur á Skriðuklaustri u.þ.b. klukkustund síðar. Áð verður á tveimur stöðum á leiðinni og þar lesið úr Passíusálmum sr. Hallgríms. Tilvalið er svo að snæða hádegisverð í Klausturkaffi að lokinni göngu.
6. apríl 2012 Píslarsagan lesin í Glerárkirkju Píslarsaga Krists verður lesin í messu á Föstudaginn langa í Glerárkirkju. Messan hefst kl. 11:00. Þar minnumst við krossdauða Jesú Krists, sem lét lífið fyrir okkur, syndugar manneskjurnar. Það er sr. Gunnlaugur Garðarsson sem þjónar í þessari messu. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots.
Sjá nánar: http://www.glerarkirkja.is/is/kirkjan/news/pislarsagan-lesin-i-messu-a-fostudaginn-langa/ 6. apríl 2012 Lesið úr Passíusálmum sr. Hallgríms Péturssonar Föstudaginn langa verður lesið úr Passíusálmum sr. Hallgríms Péturssonar kl. 13:00-16:00 í Hofskirkju, Vopnafirði.
Boðið verður upp á kaffi í félagsheimilinu Staðarholti meðan lesturinn stendur yfir. Öllum velkomið að hlýða á lesturinn og njóta góðgjörða.
Sjá nánar: http://www.kirkjan.is/hof 6. apríl 2012 Lestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar í Hallgrímskirkju Lestur Passíusálmanna hefst kl. 13.00. Stúdentar í guðfræði og bókmenntafræði við Háskóla Íslands lesa. Umsjón með lestrinum hefur Baldur Sigurðsson dósent. Í tilefni 30 ára afmælis Listvinafélags Hallgrímskirkju og 20 ára afmælis Klais-orgelsins, hefur Listvinafélagið pantað 6 nýja Passíusálmaforleiki eftir íslensk tónskáld, sem verða frumfluttir milli sálmalestranna af organistum kirkjunnar, Herði Áskelssyni og Birni Steinari Sólbergssyni. Tónskáldin eru Elín Gunnlaugsdóttir, Hjálmar H. Ragnarsson, Hugi Guðmundsson, John A. Speight, Þorkell Sigurbjörnsson og Þuríður Jónsdóttir.
6. apríl 2012 Föstudagurinn langi Atburðir föstudagsins langa hugleiddir. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.
Sjá nánar: http://www.kopavogskirkja.is 6. apríl 2012 Íhuganir undir krossinum ,,Grundvöllur gildanna og gáta lífsins" er yfirskrift erindis sem Ágúst Þór Árnason, aðjunkt við Háskólann á Akureyri og deildarformaður lagadeildar flytur á fræðslu- og íhugunarstund í Glerárkirkju á Föstudaginn langa kl. 14:00. Í upphafi stundarinnar er stutt helgistund. Boðið er upp á kaffiveitingar í safnaðarsal að erindi loknu og fólk hvatt til að taka þátt í umræðum. Umsjón með stundinni hefur sr. Gunnlaugur Garðarsson.
Sjá nánar: http://www.glerarkirkja.is/is/kirkjan/news/ihuganir-undir-krossinum/ 6. apríl 2012 Lestur Passíusálma í Kópavogskirkju Nemendur úr Kársnesskóla lesa Passíusálma Hallgríms Péturssonar. Lesturinn hefst kl.15:15 og lýkur um kl.19:15. Gestir geta komið og farið að vild á meðan lestrinum stendur.
Sjá nánar: http://www.kopavogskirkja.is 6. apríl 2012 Garpsdalskirkja Helgistund við krossinn. Píslarsagan og Passíusálmarnir fléttuð saman. Viðar leikur á orgelið.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/reykholar 6. apríl 2012 Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yrfirgefið mig? FÖSTUDAGURINN LANGI
20:00 GUÐ MINN, GUÐ MINN, HVÍ HEFUR ÞÚ YFIRGEFIÐ MIG?
Dr. Kristinn Ólason fjallar um sálminn sem Kristur vitnaði til á krossinum.
Ragnheiður Steindórsdóttir, leikkona les ritningarlestra.
Hannes Þ. Guðrúnarson, gítarleikari leikur milli atriða.
Umsjón: Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
Sjá nánar: http://lindakirkja.is 6. apríl 2012 Kvöldvaka við krossinn í Hjallakirkju Leitast er við að lifa atburði dagsins á myndrænan hátt og minnast dauða Krists með táknrænum hætti. Sr. Íris Kristjánsdóttir leiðir stundina. Fermingarbörn lesa sjö orð Krists á krossinum og fólk úr kirkjustarfinu annast lestur píslarsögunnar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Þátttakendur í kvöldvökunni yfirgefa kirkjuna myrkvaða.
Sjá nánar: http://hjallakirkja.is 6. apríl 2012 Æðruleysismessa í Egilsstaðakirkju Æðruleysismessa verður í Egilsstaðakirkju á föstudaginn langa kl. 20.
Sameiginleg guðsþjónusta safnaðanna á Héraði.
Davíð Þór Jónsson, cand. teol. predikar.
Margrét Lára Þórarinsdóttir syngur einsöng.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/austurland 6. apríl 2012 |