Æskulýðsguðsþjónusta
Á sunnudaginn, 21. mars, verður æskulýðsguðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju kl. 14. Fermingarbörn sjá um bænir, lestur og kynningu á messunni. Nemendur tónlistarskólans sjá um tónlistaratriði. Kaffi í þjónustuhúsinu á eftir athöfn. Ekki missa af þessari dýrmætu stund með börnunum okkar og unglingum í kirkjunni!
Merki: Fermingarfræðsla, Hjarðarholtskirkja, þjónustuhús, æskulýðsguðsþjónusta
Óskar Ingi Ingason, 16/3 2010 kl. 9.10