Dalaprestakall

 

Ein bæn Auðar djúpauðgu

Í þjóðsögum og munnmælum Jóns Þorkellssonar er þessa bæn að finna:

Ein bæn Auðar djúpauðgu

að vitni Ara prests f(róða)

,,Kross geri ég yfir mér

sem Drottinn minn gerði yfir sér,

þá hann sté af jarðríki

upp til himnaríkis,

bak †, brjóst †, friðar †,

höfuð †, drottins míns,

svo ég sé hvorki fyrirlitin

né í svefni svikin,

ekki bráðum dauða tekin,

ekki vakandi villtur (villt).

Sonar guðs helgi †

leiði mig í himnaríki.

Amen.’’

Merki: ,

Óskar Ingi Ingason, 20/6 2010 kl. 10.00

     

    Dalaprestakall, Miðbraut 11, 370 Búðardal. Sími 4341639 · Kerfi RSS