120 ára afmæli Staðarfellskirkju
Á sunnudaginn, 30. október, verður guðsþjónusta í Staðarfellskirkju kl. 14 í tilefni þess að 11. október síðastliðinn voru 120 ár frá því að kirkjan var vígð. Boðið verður í kaffi eftir athöfn. Fjölmennum til kirkju Guðs, fögnum og þökkum.
Sama dag verður sunnudagaskóli í Hjarðarholtskirkju kl. 11. Hvað verður í fjársjóðskistunni? Djús og dund í þjónustuhúsinu á eftir. Ekki gleyma að leyfa mömmu, pabba og systkinunum að koma með!!
Sunnudaginn 6. nóvember kl. 16 verður aðalsafnaðarfundur Hjarðarholtssóknar í þjónustuhúsi Hjarðarholtskirkju. Dagskrá fundar eru venjuleg aðalfundarstörf, kosningar og önnur mál.
Sunnudaginn 6. nóvember kl. 11 verður sunnudagaskóli í Hjarðarholtskirkju. Slíkar stundir verða alla sunnudaga fram að jólum á sama tíma.
Sunnudaginn 6. nóvember, allra heilagra messa, kl. 14 verður messa í Hjarðarholtskirkju.
Sunnudaginn 6. nóvember kl. 16 verður aðalsafnaðarfundur Hjarðarholtssóknar í þjónustuhúsinu.
Sunnudaginn 20. nóvember, kl. 14 verður guðsþjónusta í Stóra Vatnshornskirkju. 40 ára afmæli kirkjunnar.
Sóknarprestur.
Merki: Aðalsafnaðarfundur, afmæli, Allra Heilagra messa, Allra sálna messa, Hjarðarholtskirkja, Hjarðarholtssókn, Stóra Vatnshornskirkja, þjónustuhús
Óskar Ingi Ingason, 25/10 2011 kl. 10.54
