40 ára afmæli Stóra Vatnshornskirkju
Á sunnudaginn, 20. nóvember, verður guðsþjónusta í Stóra Vatnshornskirkju kl. 14 í tilefni þess að 15. ágúst síðastliðinn voru 40 ár frá því að kirkjan var vígð. Boðið verður í kaffi eftir athöfn. Séra Óskar Ingi Ingason þjónar fyrir altari. Organisti Halldór Þorgils Þórðarson. Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir sönginn.
Merki: afmæli, guðsþjónusta, Stóra Vatnshornskirkja
Óskar Ingi Ingason, 13/11 2011 kl. 11.45
