Aðventukvöld safnaðanna
Á sunnudag, 4. desember, verður sameiginlegt aðventukvöld safnaðanna í Stóra Vatnshornskirkju kl. 20. Fjölbreytt dagskrá þar sem söfnuðirnir eru mjög virkir. Nemendur úr tónlistaskólanum leika lög. Kirkjukór Dalaprestakalls styður við sönginn. Einnig verður flutt ljóð og lesin jólasaga.
Á sunnudag, 4. desember, verður sunnudagaskólinn í Hjarðarholtskirkju kl. 11. Söngur, gleði, bangsar og bros!!
Merki: aðventukvöld, Barnastarf, Kirkjukór, Stóra Vatnshornskirkja, sunnudagaskóli, tónlistarskólinn
Óskar Ingi Ingason, 29/11 2011 kl. 13.46