Dalaprestakall

 

Guðsþjónustuhald á jólum og áramótum:

Jólaguðsþjónusta á Fellsenda.
Á aðfangadag, 24. desember, verður helgistund á hjúkrunarheimilinu Fellsenda kl. 14.

Prestur: Óskar Ingi Ingason.  Allir velkomnir!

Aftansöngur í Hjarðarholtskirkju.
Aftansöngur verður í Hjarðarholtskirkju í Dölum á aðfangadag jóla kl. 18.

Prestur: sr. Óskar Ingi Ingason.   Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson.  Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir sönginn.

Hátíðarguðsþjónusta í Staðarfellskirkju.

Hátíðarguðsþjónusta verður í Staðarfellskirkju á jóldag, 25. desember, kl. 17.

Prestur: sr. Óskar Ingi Ingason. Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson. Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir sönginn.

Kertaguðsþjónusta Í Kvennabrekkukirkju.

Á jóladagskvöld, 25. desember, verður kertaguðþjónusta í Kvennabrekkukirkju kl. 20:30.

Prestur: Óskar Ingi Ingason.  Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson.

Aðeins verður notast við kertaljós í guðsþjónustunni.

Jólafjölskylduguðsþjónusta í Hvammskirkju.

Jólafjölskylduguðsþjónusta verður í Hvammskirkju á annan í jólum kl. 14.

Prestur: sr. Óskar Ingi Ingason.  Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson.

Fjölskylduguðsþjónusta er að forminu til hefðbundin guðsþjónusta, en með léttara yfirbragði sem hentar ekki síst börnunum.

Helgistund á Silfurtúni.

Á þriðja í jólum, 27. desember, verður helgistund á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Silfurtúni kl. 14.

Prestur: Óskar Ingi Ingason.  Allir velkomnir!

Hátíðarguðsþjónusta í Snóksdalskirkju.

Hátíðarguðþjónusta verður í Snóksdalskirkju á gamlársdag kl. 14.

Prestur: sr. Óskar Ingi Ingason.  Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson.  Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir sönginn.

Merki: , , , , , , , , ,

Óskar Ingi Ingason, 14/12 2011 kl. 11.56

     

    Dalaprestakall, Miðbraut 11, 370 Búðardal. Sími 4341639 · Kerfi RSS