Aðventukvöld á Staðarfelli
Á föstudag, 9. desember, verður sameiginlegt aðventukvöld safnaðanna í Staðarfellskirkju kl. 21. Fjölbreytt dagskrá þar sem söfnuðirnir eru mjög virkir.
Sama dag, föstudag, kl. 11 verður kyrrðarstund á Fellsenda.
Á sunnudag, 11. desember, verður sunnudagaskóli í Hjarðarholtskirkju kl. 11. Leyfið mömmu og pabba að koma með og hjálpið þeim að komast í rétta aðventuskapið!
Á miðvikudag, 14. desember, verður kyrrðarstund á Silfurtúni kl. 16:30. Slíkar stundir verða á miðvikudögum á aðventu. Allir ávallt velkomnir!
Merki: aðventukvöld, Fellsendi, guðsþjónusta, Hjarðarholtskirkja, Silfurtún, Staðarfellskirkja, þjónustuhús
Óskar Ingi Ingason, 8/12 2011 kl. 15.44

